Sport

Jóhannes hættur með landsliðinu

Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Leicester City, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið í knattspyrnu. Jóhannes Karl sagði í samtali við íþróttadeildina í morgun að þetta geri hann af persónulegum ástæðum, hann telji sig ekki geta sinnt verkefnum á vegum landsliðsins af fullum krafti og því telji hann rétt að stíga til hliðar. Jóhannes Karl sagði að ákvörðun sín snerist ekki um að gagnrýna einn eða neinn en auðvitað hefði fullt af hlutum getað farið betur, eins og hann komst að orði. „Ég er hundrað prósent maður í því sem ég tek mér fyrir hendur. Ég er ekki bitur og óska strákunum góðs gengis,“ sagði Jóhannes Karl við íþróttadeildina en hann útilokar ekki að bjóða sig aftur í landsliðið í framtíðinni. Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari segir að ákvörðun Jóhannesar Karls hefði komið sér í opna skjöldu. Ásgeir sagði að hann og Logi Ólafsson hefðu átt gott samstarf við leikmanninn og engan skugga borið þar á. Auk Jóhannesar Karls hefur Ívar Ingimarsson, varnarmaður Reading, ekki gefið kost á sér í landsliðið. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, segist ekkert skilja í þessari ákvörðun Jóhannesar Karls. Þegar Jóhannes Karl er spurður að því hvort ekki hafi verið rétt að að láta landsliðsþjálfarana eða KSÍ vita af þessari ákvörðun sinni áður en gaf hana út opinberlega sagði hann að vissulega væri nokkuð til í því en ýmislegt kæmi fyrst upp á yfirborðið í fjölmiðlum. Bræður Jóhannesar Karls, Bjarni og Þórður, gefa áfram kost á sér í íslenska landsliðið. Bjarni staðfesti það við íþróttadeildina í morgun. Næsta verkefni landsliðsins eru tveir heimaleikir við Ungverjaland og Möltu 4. og 8. júní í undankeppni HM. Ljóst er að Hermann Hreiðarsson verður ekki með vegna meiðsla í leikjunum, Heiðar Helguson verður í banni í fyrri leiknum og Jóhannes Karl gefur ekki kost á sér frekar en Ívar. Hægt er að hlusta á viðtal við Eggert Magnússon, formann KSÍ, úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×