Ungbarnagrautur tekinn úr umferð 3. ágúst 2005 00:01
Ungbarnagrautur með yfir helmings markaðshlutdeild var tekinn úr umferð vegna þess að hann uppfyllti ekki evrópsk skilyrði. Misræmið kom bæði hinu opinbera og heildsalanum í opna skjöldu. Í bæklingi Manneldisráðs og Miðstöðvar heilsuverndar barna um næringu ungbarna er mælt með því að börnum á aldrinum 6-9 mánaða sé gefinn járnbættur ungbarnagrautur úr hreinu járnbættu mjöli en við sex mánaða aldurinn fer næringaþörf barnanna að aukast og járnbúskapur þeirra getur minnkað. Þá getur hættan á járnskorti aukist en aðaljárngjafar 6-8 mánaða gamalla barna eru ungbarnagrautar. Nú hafa Gerber-þurrgrautarnir verið teknir úr sölu en þeir hafa staðið landanum til boða í yfir tvo áratugi. Ásta Ágústsdóttir, markaðsfulltrúi hjá Íslensk-ameríska, segir ástæðuna vera þá að mismunandi reglugerð gildi um járnbætingu í barnamat á milli Evrópu og Bandaríkjanna og meira járnmagn sé í grautunum í Evrópu en sé leyfilegt. Engar nýlegar breytingar hafa verið gerðar á reglugerðinni hér á landi og enginn vissi af þessu misræmi í járninnihaldi grautsins fyrr en á þessu ári. Þar sem engin heimild er fyrir undanþágum í reglugerðinni var ekki annað í stöðunni en að taka þurrgrautinn úr sölu. Þó ber að taka fram að hér er ekki átt við krukkumatinn vinsæla því hann er framleiddur innan Evrópusambandsins og samkvæmt evrópskum reglugerðum. Til að mæta gapinu sem myndast í þurrmatnum mun Íslensk-ameríska flytja inn barnamat frá dönskum framleiðanda sem væntanlegur er í verslanir um miðjan mánuðinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Ursula von der Leyen kemur til Íslands Innlent Fleiri fréttir Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni" Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjá meira