A-dúr hjá Brimkló og Beethoven 3. ágúst 2005 00:01
Ólafur hefur marga fjöruna sopið í tónlistinni en hann hefur verið bassaleikari í fjölmörgum hljómsveitum og nægir þar að nefna Sóldögg, Galileó og svo lék hann á tímabili í hljómsveit Páls Rósinkrans. Hann er einnig lærður kokkur. "Ég varð þó fljótlega að leggja pönnuna á hylluna þar sem fiski- og ölgersofnæmi voru mér til trafala á þeim vettvangi en ég er nú eiginlega bara þakklátur fyrir að svo fór, núna þegar ég lít til baka," segir Ólafur. En hvernig datt honum í hug að stofna tónlistarskóla? "Ég var að keyra Ragnar fósturson minn í tónlistarskóla í Reykjavík því allir tónlistarskólar voru troðfullir í Kópavogi þegar hugmyndin að Tónsölum kviknaði," útskýrir hann. En það getur tekið tíma og þrek að koma hugarfóstri sínu á legg en Ólafur vissi á hvað hann stefndi og hvað þyrfti til svo þangað yrði komist. "Ég var náttúrlega með þennan tónlistarlega bakgrunn en allt hitt vantaði svo ég fór í viðskiptafræði í háskólanum með það fyrir augum að læra að stofnsetja og reka svona batterí. En svo er ég mjög þakklátur fyrir að Kópavogsbær skyldi hafa kjark og metnað til að gera mér kleift að koma þessu á koppinn." En markmið Ólafs með skólanum er ekki einungis að verða við eftirspurinni við tónlistarkennslu í Kópavogi heldur ætlar hann að brydda upp á nýjungum við kennsluna. "Þessi skóli byggir á svokallaðri hryn forskrift þar sem áherslan er aðallega lögð á hrynjandi. Það felur í sér að laða kennsluefnið að nemandanum og því sem hann hefur áhuga á þannig að ég sem kennari leita á náðir Iron Maiden-laganna ef áhugasvið nemandans krefst þess. Það er hægt að fara svo margar leiðir við tónlistarkennslu enda er a-dúrinn eins hjá Bimkló og Beethoven," segir Ólafur og brosir við. Eflaust vildu margir vera fluga á vegg þegar áhugasvið nemanda krefst þess að þessi hugprúði bassaleikari bregði fyrir sig þungarokki eða pönki.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Jóhannes Valgeir er látinn Innlent Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Erlent Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Erlent Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Innlent Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Innlent Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Innlent Fleiri fréttir Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks ÁTVR stórgræði á misnotuðu kerfi og lögreglustöð í Breiðholti „Það er ekkert ósætti eða rifrildi“ Sýkt vatnsból á Stöðvarfirði eigi brátt að heyra sögunni til Íbúum Bláskógabyggðar fjölgar og fjölgar Fangelsismál í krísu og rannsókn á morðinu á Kirk „Það virðist aldrei vera nein lausn í sjónmáli“ Heimsótti heimaslóðirnar 52 árum eftir nauðlendinguna Sitjandi formaður dregur framboðið til baka á kjördag Stebbi í Lúdó látinn Ölvaðir einstaklingar víða til vandræða „Hann fékk einfaldlega ekki þá hjálp sem hann þurfti á að halda“ Ósætti með nýtt grenndargámasvæði: „Þetta er bara mikið áhyggjuefni“ Áköf úrkoma hætti á skriðuföll á Ströndum Stærsti skjálfti síðan í maí fannst í byggð Þurfi að jafna réttindi upp á við en ekki skerða hjá einum hóp Leggur fram öryggis- og varnarstefnu: „Ógnin er veruleg“ Óformlegar verkfallsaðgerðir hjá Play og tilfinningaþrungnir dagar Sjá meira