Nýtt skipafélag stofnað á Akureyri 25. nóvember 2005 04:00 Hafnarsvæðið á Akureyri. Aðstaða hins nýja skipafélags verður að öllum líkindum á Oddeyrartanga og hafa átt sér stað viðræður þess efnis á milli hafnaryfirvalda á Akureyri og forsvarsmanna nýja skipafélagsins.
Nýtt íslenskt skipafélag er í burðarliðnum og hyggur félagið á reglulega fragtflutninga á milli Eyjafjarðar og Evrópu snemma á næsta ári. Viðræður við væntanlega fjárfesta standa yfir en Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, segir fjármögnun langt komna. "Þar sem eigendahópurinn er ekki fullmótaður er of snemmt að gefa upp hverjir eigendurnir eru en þó get ég sagt að þeir verða bæði norskir og íslenskir. Skipafélagið verður skráð á Íslandi og með höfuðstöðvar á Akureyri en hugsanlegt er að afgreiðslustaðir verði einnig á öðrum þéttbýlisstöðum á Eyjafjarðarsvæðinu," segir Magnús. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur á yfirstandandi ári skoðað leiðir til að lækka flutningskostnað fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu og auka þar með samkeppnishæfni þeirra. Niðurstaða atvinnuþróunarfélagsins er að vænlegast sé að koma upp beinum flutningum á milli Norðurlands og helstu markaða í Evrópu, en Magnús segir að um 20 prósent af öllum útflutningi Íslendinga komi frá Eyjafjarðarsvæðinu. "Með tilkomu skipafélagsins geta fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæðinu, sem standa í inn- og útflutningi, lækkað flutningskostnað sinn verulega því ekki verður nauðsynlegt að aka vörum í stórum stíl á milli höfuðborgarsvæðisins og Norðurlands," segir Magnús. Til að halda stofnkostnaði niðri er gert ráð fyrir að skipafélagið taki á leigu fimm til sex þúsund tonna gámaflutningaskip sem flutt geti á bilinu fjögur til fimmhundruð gáma í senn. "Til að tryggja lág flutningsgjöld verður kostnaði og yfirbyggingu félagsins haldið í lágmarki en þess þó gætt að félagið hafi fjárhagslega burði til að halda úti skiparekstri með litlum tekjum fyrstu árin. Áfangastaðir félagsins erlendis verða væntanlega í Bretlandi, Danmörku og Hollandi og til að byrja með verður siglt tvisvar í mánuði á milli allra áfangastaðanna," segir Magnús.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira