Innlent

Sjúkraliðar semja

Sjúkraliðar hafa samþykkt kjarasamning við fjármálaráðherra sem undirritaður var 30. júní síðastliðinn. Þegar búið var að telja upp úr kjörkössunum kom í ljós að mikill meirihluti félagsmanna hafði samþykkt samninginn. 598 eða rúm 95 prósent þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já, 23 eða tæp fjögur prósent sögðu nei og 5 seðlar voru auðir eða ógildir. Á kjörskrá voru 1023 sjúkraliðar sem starfa á kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands við ríkisreknar heilbrigðisstofnanir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×