Innlent

Kveiktu í fyrir slysni

Tveir fjórtán ára piltar kveiktu í bíl við Smáralind fyrir slysni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í gærkvöldi kallað út eftir að kveikt hafði verið í bíl við Smáralindina. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi gekk vel að ráða að niðurlögum eldsins en bíllinn telst þó gjörónýtur. Tveir fjórtán ára gamlir piltar voru að leika sér með eld og höfðu kveikt í bréfadrasli, eldurinn barst svo í bílinn með fyrrgreindum afleiðingum. Strákarnir gerðu sjálfir lögreglu viðvart og hafa gengist að fullu við verknaðnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×