Geta fengið olíuna endurgreidda 18. júlí 2005 00:01
Björn Karlsson brunamálastjóri segir Brunamálastofnun hafa borist allmargar vísbendingar um fólk sem hamstraði olíu fyrir gildistöku olíugjaldsins og geymi hana við óviðunandi aðstæður. Hann segir að fólk sem vilji losna við olíuna og hættuna sem fylgir henni geti skilað henni til olíufélaganna og fengið hana endurgreidda. Hægt er að geyma olíuna löglega í þartilgerðum tönkum sem eru sérmerktir og með leyfi frá Umhverfisstofnun. Þá mega einstaklingar sem hafa tilskilin leyfi eiga allt að fimm þúsund lítra af olíu. Að öðrum kosti er beinlínis ólöglegt að geyma dísilolíu. Dísilolía er ekki jafn eldfim og bensín og því í raun ekki sérstaklega mikil hætta á því að það kvikni í út frá henni. Hins vegar er ljóst að ef kviknar í af öðrum ástæðum mun dísilolía alltaf auka á eldinn og gera slökkviliði erfiðara fyrir. Einnig er gríðarleg mengunarhætta af dísilolíu komist hún út í umhverfið. Hægt er að skila dísilolíunni til olíufélaganna sem kaupa hana til baka á sama verði að því gefnu að hún sé í söluhæfu ástandi. Rétt er þó að brýna fyrir fólki að ekki gengur að koma með olíuna á afgreiðslustöðvar, hafa þarf samband við skrifstofur olíufélaganna þar sem veittar eru upplýsingar um hvernig eigi að losna við olíuna.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira