Olíufélögin taka við díselolíu 18. júlí 2005 00:01
Leyfilegt var að kaupa 5000 lítra af olíu á hverja kennitölu áður en verðbreytingin átti sér stað um síðustu mánaðarmót og virðast allnokkrir hafa nýtt sér það og hamstrað olíu. Eins og Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá í síðustu viku mátti finna eina 5600 lítra af díselolíu á bílastæði við Smáratorg í eigu flutningsfyrirtækisins Flutningar.is. Olían var geymd í plasttönkum utan af ávaxtaþykkni frá Ölgerð Egils Skallagrímsonar. Málið er til skoðunar hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Ríkislögreglustjóra og Heilbrigðiseftirlitinu. Páll Stefánsson hjá Heilbrigðiseftirliti Kópavogs, Garðabæjar og Hafnafjarðar segir að fólkið sem hamstrar olíu sé undir öllum kringumstæðum ábyrgt fyrir henni ef upp kemur óhapp. Skemmst er að minnast þess þegar bruni varð í Ísbjarnarhúsinu á Seltjarnarnesi fyrir um tveimur árum en þar voru slökkviliðsmenn í mikilli hættu þegar eldur barst í olíubirgðir sem þar voru geymdar. Páll segir það ábyrgðarleysi að geyma olíu við ófullnægjandi aðstæður og hvetur fólk sem hefur hamstrað olíu til að hafa samband við Slökkviliðið, Eldvarnareftirlitið eða Heilbrigðiseftirlitið til að fá ráðgjöf varðandi geymsluaðstæður. Á fundi með Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins í síðustu viku buðust Olíufélögin til að sækja olíu til fólks sem telur geymsluaðstæður ekki fullnægjandi. Standist olían gæðakröfur eru Olíufélögin tilbúin að endurgreiða olíuna, miðað við verð fyrir mánaðarmót, en ef hún er ónýt taka þeir við henni og koma henni í förgun. Páll vonar því að fólk sem hefur hamstrað olíu verði sem fljótast að klára hana eða nýti sér þann kost að skila henni aftur til olíufélaganna.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira