Atvinnurekendur sögðu nei við ASÍ 4. nóvember 2005 03:30
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað tillögum Alþýðusambands Íslands um tveggja prósenta launahækkun sem lögð var fram í viðræðum forsendunefndar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Í henni eiga sæti tveir fulltrúar ASÍ og SA sem eru sammála um að forsendur samninganna séu brostnar. Fulltrúar ASÍ hafa sagt að búast megi við að þeim verði sagt upp 10. desember nái forsendunefndin ekki samkomulagi á næstunni. Tillögur ASÍ miðast við þær verðbólguforsendur sem síðustu kjarasamningar voru gerðar út frá. "Við höfum talið að þar sem markmið Seðlabankans og forsendur kjarasamninga gera ráð fyrir 2,5 prósenta verðbólgu en verðbólgan er í raun 4,5 prósent sé það nokkuð klárt hver munurinn er," segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. "Að öðru leyti er þetta mál til úrlausnar," segir hann. "Það er þó ljóst að ekki hefur verið vilji af hálfu atvinnurekenda til að semja og stefnir í að ekki náist saman að óbreyttu," segir Gylfi. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir varhugavert að horfa dómgreindarlaust og vélrænt á verðbólgutölur. "Við semjum ekki um verðbólgu eða kaupmátt. Við semjum um tilteknar launahækkanir," segir Ari. "Kaupmáttur er í sögulegu hámarki á Íslandi. Við teljum því ekki forsendur til þess að vera með einhver ýktari viðbrögð nú en var þá af svipuðu tilefni. Það er alls ekki sanngjarnt, þegar horft er til eðlis verðbólgunnar, að afgreiða verðbólguna sem frádrátt frá kaupmætti almennings. Þrír fjórðu hennar eru vegna fasteignaverðs, en einnig vegna aukinnar neyslu og betri lífsgæða," segir Ari. Hann segir ekki útilokað að samið verði um hækkun launa þótt það verði ekkert í líkingu við tillögur ASÍ. "Þetta snýst um kostnaðinn fyrir atvinnulífið. Það er alveg ljóst að svigrúmið til breytinga er ekki af þeirri stærðargráðu sem þarna er slegið fram. Slík nálgun fæli að auki í sér afturhvarf til víxlhækkunar launa og verðlags," segir Ari. "Það væri hins vegar mjög slæmt fyrir almenning í landinu ef samningar næðust ekki og yrði með því brugðið frá þeirri sátt sem hefur verið í landinu um árabil og ekki víst að næðist saman um langan tíma aftur," segir Ari.
Innlent Mest lesið Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Erlent Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Erlent Hópslagsmál og hundaárás Innlent Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Innlent Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Innlent Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Innlent Misstu allt samband við Internetið Erlent Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Innlent Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Erlent Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Innlent Fleiri fréttir Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Hópslagsmál og hundaárás Vonsviknir ferðamenn og reiði út í Icelandair vegna hækkunar fargjalda Arnarflug lifað lengst í samkeppni við Icelandair Fall Play frá öllum hliðum Tilkynnt um dróna yfir Keflavíkurflugvelli Þriggja ára fangelsi: Tók ekki mark á lygilegri frásögn Neyðast til að millilenda, tapaður peningur og rándýr flug heim Lítur svo á að hann njóti ekki trausts og hefur beðist lausnar Banaslys á Skagavegi 2024: Drukknaði eftir að hafa misst stjórn í beygju Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Bein útsending: Lýðheilsuvísar 2025 kynntir Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg „Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ Play hættir að fljúga, hundruð missa vinnuna og strandaglópar í Leifsstöð Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Sjá meira