Samtök atvinnulífsins ósátt við ASÍ 4. nóvember 2005 03:45 Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að þær raddir heyrist nú meðal vinnuveitenda að rétt væri að Samtök atvinnulífsins segðu upp kjarasamningum til að losna undan þeim miklu kostnaðarhækkunum sem framundan eru að óbreyttu.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gagnrýnir yfirlýsingu miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um að einsýnt sé að til uppsagnar kjarasamninga muni koma að óbreyttu. Ari segir að staða íslenskra fyrirtækja sem búa við alþjóðlega samkeppni hafi versnað gríðarlega frá því að gengið var frá kjarasamningum vorið 2004 og að firnasterkt gengi íslensku krónunnar grafi undan undirstöðum íslensks atvinnulífs. "Þessi yfirlýsing hlýtur að teljast með miklum ólíkindum ef horft er til stöðu viðræðna milli aðila og þróunar kaupmáttar í landinu, en varanleg og traust hagfelld þróun kaupmáttar hlýtur að vera það sem starf aðila vinnumarkaðarins snýst um fyrst og síðast," segir Ari í fréttabréfi SA sem birt var í gær. "Það er ekki um það deilt að forsenduákvæði kjarasamninga eru virk, einkum vegna verðlagsþróunar, þótt samningar annarra en ASÍ komi einnig til skoðunar. Engu að síður er ljóst að kaupmáttur er í sögulegu hámarki," segir hann. Ari segir að þótt uppsögn samninga standi ekki til af hálfu vinnuveitenda sé því ekki að neita að þær raddir heyrist nú meðal þeirra að rétt væri að SA segði upp kjarasamningum til að losna undan þeim miklu kostnaðarhækkunum sem framundan eru að óbreyttu. "Ákvæði samninga um mögulega uppsögn eru nefnilega gagnkvæm," segir hann. Hann segir lánveitingar og þenslu tengda íbúðamarkaði helstu orsök verðbólgunnar. "Sú hótun vofir yfir atvinnulífinu að frekari launahækkanir leiði til enn meiri vaxtahækkana Seðlabanka, til að hemja verðbólgu, á meðan stjórnendur fyrirtækja ræða í alvöru um það hvort fyrirtækin muni halda út í 12 til 24 mánuði í viðbót," segir Ari. "Hækkun á útgjöldum fyrirtækja við þessar aðstæður er því hið mesta óráð og einungis til þess fallin að fækka störfum og auka verðbólgu. Seðlabankinn mun væntanlega hækka stýrivexti sína enn meira en ella verði aukið við samningsbundnar hækkanir í kjarasamningum, sem umsvifalaust mun hækka gengi krónunnar," segir hann.
Innlent Mest lesið Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Erlent Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Erlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Innlent Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Klemmdist undir rútu Innlent Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Erlent Fleiri fréttir Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent