Verða að gera nýtt umhverfismat 9. júní 2005 00:01
Alcoa verður að kosta nýtt umhverfismat á álverksmiðju sinni í Fjarðabyggð eftir að Hæstiréttur ógilti úrskuð umhverfisráðherra í dag. Náttúruverndarsinnar fagna en Alcoa-menn segja þetta engin áhrif hafa á framkvæmdir. Umhverfisráðherra tekur í sama streng. Forsaga málsins er sú að deilt var um lögmæti umverfismats og veitingu starfsleyfis til álversins á Reyðarfirði. Skipulagstofnun komst að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti nýtt umhverfismat þegar Alcoa tók verkefnið yfir en Norsk Hydro hafði áður komið að því. Umhverfisráðherra staðfesti þessa niðurstöðu sem hæstiréttur ógilti í dag. Það var Hjörleifur Guttormsson sem höfðaði málið og Atli Gíslason lögmaður rak það fyrir rétti. Hann kvaðst í dag verulega ánægður með niðurstöðuna og taldi ekki lagalegar forsendur fyrir starfsleyfi Alcoa. Ekki var Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, sammála því þegar fréttastofan náði tali af honum skömmu fyrir fréttir. Hann sagði framkvæmdaleyfið standa þar sem það væri ekki afturkallanlegt og því héldu framkvæmdir áfram. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra segir dóminn vonbrigði en segir hann byggja á formsatriðum. Aðspurð hvort þetta sé ekki áfellisdómur yfir vinnubrögðum ráðuneytisins segist hún ekki vita hvort nota eigi svo stór orð en þarna hafi í það minnsta ekki verið rétt að verki staðið samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar. Náttúruverndarsinnar telja álver Alcoa menga meira en álverið sem Norsk Hydro hugðist byggja og eru á því að ekki sé beitt bestu tækni. Sigríður Anna vill þó ekki meina að verið sé að slaka á umhverfisstöðlum því líta verði á heildaráhrifin. Hún segir að nú muni fara fram nýtt mat á umhverfisáhrifum. Tómas Már segir Alcoa fara eftir svokölluðum Parcom-stöðlum Evrópusambandins um bestu fáanlegu tækni við álvinnslu. Þrátt fyrir nýtt umhverfismat er óvíst að málinu sé lokið því Atli Gíslason segir náttúruvini fylgjast með viðbrögðunum og kanna frekari málarekstur.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna Sjá meira