Dýrari og ótraustari nettenging Farice 28. nóvember 2005 05:00 Farice sæstrengurinn liggur frá Skotlandi til Íslands. Öryggi hans hefur verið ábótavant og flutningsgjöld eru dýr. Farice hefur ekki kost á að lækka gjöldin fyrr en viðskiptaumhverfið verður hagstæðara.
Flutningsgjöld um Farice-sæstrenginn eru allt að ellefu til átján sinnum hærri en flutningsgjöld í nágrannalöndum Íslands. Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Farice, segir þann samanburð þó ekki sanngjarnan miðað við stærð markaðar hér á landi. Við erum hér ein þjóð úti í hafi og erum ein að borga undir þetta allt saman, segir Guðmundur. London og New York eru til dæmis milljónasamfélög sem eru að nota sams konar þjónustu í miklu meiri mæli. Farice er annar tveggja strengja sem liggja til Íslands. Hinn strengurinn er CANTAT þrír. Sá strengur er orðinn ellefu ára gamall og flutningsgeta hans er mun minni en hjá Farice en Guðmundur segir Farice ekki hafa séð sér fært að bjóða jafn lágt verð og gert er hjá CANTAT. Verðskráin endurspeglar kostnað við að reka strenginn og borga niður fjárfestinguna á bakvið hann. Við erum ekki að taka inn hagnað og hátt verð liggur alls ekki í álagningu af okkar hálfu, segir Guðmundur. Guðmundur segir ef eftirspurn yrði eftir flutningsgetu ykist myndi það leiða til verðlækkunar. Að undanförnu hafa hátæknifyrirtæki flutt starfsemi sína úr landi. Ástæður þess eru margvíslegar en ein sú helsta er hátt gengi krónunnar. Viðskiptaumhverfi á Íslandi er einnig óhagstætt að mörgu öðru leyti, meðal annars vegna hás verðs flutningskostnaðar, lítillar flutningsgetu sæstrengjanna og skorts á öryggi þeirra þar sem samband rofnar oftar en eðlilegt þykir. "Ljóst er að til þess að ýmiss konar viðskipti geti dafnað hér á landi og hingað komi viðskiptaélög með nýja starfsemi verður eitthvað að gerast í þessari verðlagningu og auknu öryggi," segir Guðmundur og tekur undir að ákveðin pattstaða ríki í þessum málum. Farice hafi ekki möguleika á að lækka flutningsgjöldin nema fá fleiri fyrirtæki í viðskipti við sig en fyrirtækjum þyki verðlagning há. "Svo eru hátæknifyrirtækin farin að flýja land vegna hás gengis krónunnar og það er mjög vond staða," segir Guðmundur. Síðastliðin tvö ár hafa erlend fyrirtæki sýnt áhuga á því að koma hingað með nýja starfsemi en það sem fælir þau frá er há flutningsgjöld og að öryggi Farice hefur ekki verið nóg. Það ætti að vera hægt að laga þetta. Ríkið hefur stutt ágætlega við þetta dæmi hingað til og það verður engin breyting til batnaðar nema með samstarfi ríkis og atvinnulífsins.
Innlent Mest lesið Leita týnds göngumanns Innlent Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Innlent Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Innlent Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Innlent Sjö hundruð landgönguliðar á leið til Los Angeles Erlent Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Innlent Newsom ætlar að kæra Trump Erlent Konan er fundin Innlent Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Innlent Sannfærð um sakleysi eiginmannsins og segir hann hetjuna sína Erlent Fleiri fréttir Hljóðfæraleikarar að óbreyttu á leið í verkfall Leita týnds göngumanns Leita leiða til að auðvelda framsal fanga til heimalands síns Taka húfurnar úr sölu: Harma að „misheppnað grín“ hafi komið illa við fólk Nemar á Landspítalanum klæddust „Öldrunarbúningi“ Ökumenn mótorhjóla greiða meira en landsbyggðin minna Ástand í Kaliforníu og breytt frumvarp um kílómetragjald Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd Sóttu veikan sjómann Konan er fundin Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla Ekki hægt að nota rafræn skilríki Mjög áhyggjufull yfir tilfærslu ráðuneytisins Frestun fjármagns til verkmenntaskóla, mótmæli í LA og fjölmenningarhátíð Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn „Erum ekki að lýsa yfir stuðningi við Trump“ Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Íslendingur á válista CIA árið 1970 Flutningur Konukots mikið framfaraskref en skilur áhyggjur nágranna Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Sjá meira