Fjármálaráðuneytið ásælist Íbúðalánasjóð 28. nóvember 2005 03:30
Fundur er fyrirhugaður í vikunni milli fjármála- og félagsmálaráðuneyta þar sem reynt verður að ná sátt um framtíð Íbúðalánasjóðs. Eftir því sem næst verður komist er deilt um framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs. Fjármálaráðuneytið hefur sóst eftir því að færa starfssemi sjóðsins undir Lánasýslu ríkisins og þar með fjármálaráðuneytið í stað félagsmálaráðuneytis. Umsvif sjóðsins í íslensku hagkerfi eru umtalsverð en fyrirhugaðar lántökur íbúðalánasjóðs á næsta ári nema 88 milljörðum króna. Fyrirtækið Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. sendi félagsmálaráðuneytinu reikning upp á rúmar sjö milljónir króna sem ráðuneytið neitar að greiða. Reikningurinn var fyrir úttekt á fjárhagslegri stöðu Íbúðalánasjóðs. Niðurstöður þessarar úttektar hafa enn ekki birst. Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði nýverið í fjölmiðlum að hann legðist ekki gegn þessari úttekt en benti á að engin niðurstaða hafi náðst um hvað eigi að skoða og hvað slík úttekt eigi að kosta. Í sama viðtali taldi ráðherrann að það væri að sólunda með almannafé að greiða sjö milljónir fyrir þessa þjónustu. "Það er búið að tala alveg nóg um þetta," var það eina sem Þórhallur Arason á fjárreiðuskrifstofu fjármálaráðuneytisins hafði um málið að segja í gærkvöldi. Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu er erlendis og varð ekki fyrir svörum. Fyrirtækið Capto Financial Consulting í Svíþjóð sinnir þessu sama ráðgjafa- og úttektarhlutverki fyrir Íbúðalánasjóð og hefur sent reikning fyrir sína vinnu sem hljóðar upp á einn tíunda af því verði sem Ráðgjöf og efnahagsspár setur upp. Capto gegnir svipuðu ráðgjafar og úttektarhlutverki meðal annars fyrir sænska seðlabankann, Volvo, Electrolux og fleiri stór alþjóðleg fyrirtæki.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira