Kemur ekki til umræðu á þessu ári 28. nóvember 2005 05:45 Mörður Árnason segir liggja á fyrir RÚV að fá lagaramma.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir útilokað að frumvarp um Ríkisútvarpið verði að lögum fyrir jól. Ráðherrann sagði í Silfri Egils á NFS í gær að engin slík neyð væri uppi að það kallaði á lagasetningu fyrir jólaleyfi þingsins en það hefst 10. desember. Hann útilokaði þó ekki að frumvarpið kæmi fram á næstu vikum þó umræður um það og afgreiðsla biðu nýs árs. Kjartan Ólafsson, sem situr í menntamálanefnd Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn, segir engu breyta hvort frumvarp um Ríkisútvarpið komi fram fyrir eða eftir áramót. Himinninn ferst ekki þó það gerist ekki strax, segir hann en ítrekar að menntamálaráðherra hafi boðað komu frumvarpsins og hann bíði þess rólegur. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Ríkisútvarpinu liggja verulega á að fá nýjan lagaramma. Ríkisútvarpið hefur í tuttugu ár þurft á því að halda að hlutverk þess væri skilgreint og stjórnarháttum þess komið í nútímalegt horf. Langt er síðan vinna hófst í menntamálaráðuneytinu við smíði frumvarps um Ríkisútvarpið og telur Mörður einkum tvennt tefja verkið. Annars vegar gerði ESA alvarlegar athugasemdir við frumvarpið frá í fyrra og hins vegar er tregða í Framsóknarflokknum við að sætta sig við hlutafélagaformið sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði til í fyrra. Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin telja hins vegar að sjálfseignarstofnunarformið sé það besta fyrir RÚV.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira