Samfelld byggð á strandlínunni 7. júlí 2005 00:01
Skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögur um breytingar á deiliskipulagi við Baróns- og Skuggareit við norðurströndina í Reykjavík. Eftir að byggingar hafa risið á þessum reitum er gert ráð fyrir að samfelld byggð myndist þegar litið er á strandlínuna frá Laugarnesi. "Í Skuggareitnum gerum við ráð fyrir því að tveir turnar rísi til viðbótar við þann sem þar er. Þessir turnar verða tólf og fjórtán hæða. Við gerum enn frekar ráð fyrir því að búa til betra rými milli húsanna þannig að þarna verði ekki of þröngt. Þar verður því eins konar torg og þjónusta fyrir þá sem þarna búa. Mikill metnaður af hálfu þeirra sem byggðu þennan fyrsta turn hefur leitt til þess að þarna hefur verið mikil eftirspurn eftir íbúðum," segir Dagur. Hann segir að áhugi sé á að hefja framkvæmdir á þessu svæði í haust eða næsta vetur. Enn fremur ákvað skipulagsráð að auglýsa breytingu á deiliskipulagi á hinum svokallaða Barónsreit á mörkum Barónsstígs og Hverfisgötu. Þar er gert ráð fyrir íbúðarhúsnæði rétt eins og í Skuggareitnum. "Borgin býður þennan byggingarreit út. Þarna sjáum við fyrir okkur að þeir sem skili tilboðum sýni metnað í útliti, hönnun og öðru. Við gerum ráð fyrir um hundrað íbúðum fyrir stúdenta en þarna erum við einnig að líta til þess að þær byggingar sem þarna rísa verði bakland fyrir skipulag Hlemmsvæðisins og miðborgarinnar," segir Dagur. Hann segir að þegar hafi verið ráðist í töluverð uppkaup á fasteignum á Barónsreitnum þar sem hrörlegri eignir hafi verið keyptar. Dagur segir afar ánægjulegt að strandlengjan fái heildarmynd og mörgum finnist mikilvægt að sjá þetta svæði sem eina strandlínu og nú hylli undir þann draum. "Miðborgin er eftirsóttasta íbúðarsvæðið í Reykjavík í dag og með þessum verkefnum svörum við þeirri eftirspurn," segir Dagur.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira