Smalað á fund Framsóknar 12. október 2005 00:01
Bent var á að stærsti hluti nýju félaganna er rétt yfir tvítugu og ætti því samkvæmt öllu að vera félagar í Félagi ungra framsóknarmanna. Núverandi formaður félagsins, Sigrún Jónsdóttir, tilkynnti í vor að hún myndi ekki sækjast eftir endurkjöri. Ingólfur Sveinsson, fráfarandi gjaldkeri og stuðningsmaður Björns Inga í borginni, nýtur stuðnings innan stjórnarinnar til að taka við formennsku. Ágreiningur er um aðra stjórnarmenn þar sem Björn Ingi er sagður vilja koma þremur sérstökum stuðningsmönnum sínum inn í sjö manna stjórn. Þeir eru Kristín Guðmundsdóttir, systir Helga S. Guðmundssonar, eins helsta trúnaðarmanns Framsóknarflokksins, Gerður Hauksdóttir, mágkona Guðna Ágústssonar, og Stefán Þór Björnsson, fyrrverandi stjórnarmaður ungra framsóknarmanna í Hafnarfirði. Talið er að smölunin sé aðeins fyrsta skrefið í áformum Björns Inga til að ná völdum innan Framsóknarflokksins til lengri tíma litið, og sé jafnvel gerð til að styrkja stöðu hans fyrir næstu alþingiskosningar, ákveði hann að bjóða sig aftur fram til þings. Því hefur verið haldið fram að með þessu segi Björn Ingi kjörnum fulltrúum félagsins, Jónínu Bjartmarz, Alfreð Þorsteinssyni og Önnu Kristjánsdóttur, stríð á hendur í skjóli formanns flokksins og forsætisráðherra. Björn Ingi sagði í samtali við Fréttablaðið í gær ekkert vilja gefa út um áform sín varðandi borgarstjórnarkosningarnar. Spurður um smölunina í Reykjavíkurfélagið sagði hann: „Ég veit ekkert um það hvort þetta séu sérstakir stuðningsmenn mínir en mér þykir vænt um ef svo er. Hins vegar veit ég að þetta er allt gegnheilt framsóknarfólk og tel mikinn feng að því að þau og fleiri komi til liðs við starfið í aðdraganda tvennra kosninga." Hundrað og átján nýir framsóknarmenn höfðu skráð sig í Framsóknarfélagið Reykjavík suður frá því um síðustu mánaðamót. Aðalfundur verður haldinn í kvöld þar sem kosið verður í nýja stjórn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru flestir hinna nýju félaga eindregnir stuðningsmenn Björns Inga Hrafnssonar, aðstoðarmanns forsætisráðherra. Talið er að Björn Ingi stefni að því að bjóða sig fram til fyrsta sætis á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í vor, gegn sitjandi borgarfulltrúum. >
Fréttir Innlent Mest lesið Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent