Kelduhverfi logaði í eldglæringum 2. ágúst 2005 00:01
Óvenjumikið þrumuveður gekk yfir Norðurland í gær og fylgdu því miklar eldglæringar og úrhelli á afmörkuðum svæðum. Helgi Viðar Björnsson, verkstjóri hjá Rafmagnsveitum ríkins á Kópaskeri, segir að rafmagn hafi farið af öllum bæjum í Kelduhverfi og Öxarfirði í rúma klukkustund þar sem eldingu laust niður í sveitalínu. Íbúar Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar urðu rafmagnslausir í um fimmtán mínútur af völdum eldingar sem sló niður í aðveitustöð á Kópaskeri. Útsendingar beggja rása Útvarpsins duttu út í Kelduhverfi í rúmar þrjár klukkustundir og útsendingar Stöðvar 2 náðust ekki frá klukkan 15 og fram á kvöld. Katrín Eymundsdóttir, oddviti í Kelduneshreppi, segir að Kelduhverfi hafi bókstaflega logað í eldglæringum upp úr klukkan 15 og þrumurnar hafi verið mjög kröftugar. "Skepnur hræddust; hestar hlupu um tún og hundar forðuðu sér í hús. Á tímabili varð mér sjálfri ekki um sel og svo var eflaust einnig um fleiri íbúa Kelduhverfis. Mér er ekki kunnugt um tjón af völdum eldinganna en sumar komu mjög nærri húsum og sjálf heyrði ég hvissið í þeim þegar þær komu niður," segir Katrín. Sjálfvirkt eldingamælikerfi í eigu Breta, sem staðsett er á Íslandi, nam á fjögurra klukkustunda tímabili í gær, frá um klukkan 14 og til klukkan 18, hátt í 70 eldingar; flestar á Norðurlandi en einnig nokkrar á Vestfjörðum. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur og einn helsti sérfræðingur landsins um eldingar, segir óvanalegt að svo margar eldingar mælist á Íslandi á jafn stuttum tíma og eins sé fremur fátítt að eldingar valdi rafmagnstruflunum á Norðurlandi. "Það er hins vegar ekki óalgengt að eldingar valdi rafmagnstruflunum á Suður- og Suðausturlandi," segir Þórður. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að rekja megi eldingarnar til óstöðugs lofts þar sem frekar kalt loft var í háloftunum á sama tíma og loft nær jörðu var mun hlýrra. "Loftið byltist um og háreistir skúraklakkar mynduðust eins og oft gerist á meginlandi Evrópu að sumarlagi," segir Einar.
Fréttir Innlent Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Sjá meira