Álftanes ekki uppi á borðinu 2. september 2005 00:01 "
Við vorum bara að koma af rólegum fundi skipulagsnefndar þegar ég heyrði þetta í fréttum," segir Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri á Álftanesi, um ummæli Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra um að vinna sé hafin um að athuga flutning Reykjavíkurflugvallar út á Álftanes. "Mér finnst þetta óskaplega skrítin vinnubrögð, að demba sér út í einhverja vinnu sem ég hélt að væri ekki uppi á borðinu. Þessi hugmynd hefur ekki fengið neina formlega umfjöllun hér," segir Guðmundur og bendir á að fyrir 35 árum hafi því verið lýst yfir að hugmynd um flugvöll á Álftanesi væri úti af borðinu. Hann bendir á að á Álftanesi sé oft vestanvindur með öldugangi og líklega þyrfti að loka flugvelli þar nokkra daga á ári vegna sjógangs. Guðmundur segist vilja sjá Reykjavíkurflugvöll þar sem hann er, en eftir tuttugu ár sé hægt að flytja hann til Keflavíkur. Á mánudagskvöld verður haldinn opinn fundur um endurskoðun aðalskipulags Álftaness og segir Guðmundur að hann eigi alveg eins von á því að flugvallarmálið verði rætt eftir útspil Sturlu Böðvarssonar. "En ég vona að það drepi ekki á dreif aðalatriðum okkar, sem lögð hefur verið mikil vinna í."
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eldur logar í Hafnarfirði Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Fleiri fréttir Varað við bikblæðingum um land allt Eldur logar í Hafnarfirði Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sjá meira