Utanríkisstefna styrkir öfgamenn 28. ágúst 2005 00:01
Bresk utanríkisstefna og stríðið í Írak hafa hjálpað öfgamönnum úr röðum múslíma að safna nýliðum. Þetta kemur fram í skýrslu breska utanríkisráðuneytisins sem var lekið til fjölmiðla. Tony Blair hefur frá hryðjuverkaárásunum í Lundúnum ítrekað fullyrt að ástæður árásanna sé ekki að finna í Írak eða breskri utanríkisstefnu, heldur hafi hryðjuverkamennirnir byggt á afbrigðilegum útúrsnúningum á íslam. Skýrsla breska utanríkisráðuneytisins, sem sunnudagsblaðið Observer komst yfir, bendir til þess að málið sé þó ekki svona einfalt og að Blair hafi verið varaður við öfgahreyfingum ári fyrir hryðjuverkaárásirnar. Þar er sagt að stríðið í Írak kyndi undir öfgum meðal breskra múslíma. Mismunun, misrétti og útilokun valdi vissulega nokkurri spennu meðal múslíma en stríðsreksturinn og bresk utanríkisstefna séu mest áberandi í málflutningi öfgamanna sem leiti nýliða. Ungir, breskir múslímar séu á því að utanríkisstefnan hafi mjög neikvæð áhrif í múslímaríkjum og veldur því að þeim finnast þeir máttlausir og reiðir. Bretland sé komið í sama flokk og Bandaríkin sem krossfaraþjóð og því skotmark hryðjuverkamanna. Breska stjórnarandstaðan hefur í morgun stokkið á málið og sagt að í raun sé ótrúlegt að stjórn Blairs sé ekki reiðubúin að horfast í augu við það sem allir hljóti að sjá, enda blasi það við aðgerðir Breta hljóti að gera öfgamönnum auðveldara að leita nýliða.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira