Teknar verði upp beinar viðræður 21. janúar 2005 00:01
Impregilo hefur fallist á að taka upp beinar viðræður við verkalýðshreyfinguna, til þess að reyna að leysa ágreiningsmálin. Starfsmannastjóri Impregilo segir eðlilegt að verkalýðshreyfingin berjist fyrir sitt fólk. Impregilo tilkynnti um þessa stefnubreytingu á fundi með fréttamönnum í dag. Á þeim fundi voru nokkrir æðstu yfirmenn fyrirtækisins, meðal annars starfsmannastjóri þess í Mílanó. Á fundinum voru einnig fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Samiðn, Vinnumálastofnun, Landsvirkjun og Starfsgreinasambandinu. Þessir aðilar sátu á fundi í morgun. Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, sagði að engin ágreiningsmál hefðu verið til lykta leidd á þessum fundi enda hefði það ekki verið ætlunin. Hins vegar hefðu forsvarsmenn Impregilo fallist á að funda með verkalýðshreyfingunni en eftir því hefðu hinir síðarnefnu sóst frá því í um miðjan nóvember. Samþykkt hefði verið fundaáætlun þar sem vandamálin yrðu rædd. Franco Ghiringhelli, starfsmannastjóri Impregilo, kom frá Mílanó til að taka þátt í þessum viðræðum. Hann hefur eðli málsins samkvæmt fylgst vel með deilum sem upp hafa komið hér á landi. Aðspurður hvort erfiðara væri að fást við Íslendinga en aðrar þjóðir sagði Ghiringelli að það væri ekki erfiðara en að eiga við Ítali. Íslendingar ættu sína sérstöku menningu en Impregilo virti hana sem og siðvenjur þjóðarinnar. Margt væri ólíkt hjá þjóðunum tveimur en það kæmi ekki í veg fyrir að framkvæmdinni yrði lokið. Á fundinum voru einnig fulltrúar ítalskra verkalýðsfélaga og Alþjóðasambands byggingarverkamanna sem hafa kynnt sér aðbúnað verkamanna við Kárahnjúka. Þeir sögðust hafa gert athugasemdir við nokkur öryggisatriði sem og aðstöðu í mötuneyti og hefði Impregilo lofað að kippa því í liðinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Erlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Sjá meira