Tölvustelpa með ást á Tarantino 21. janúar 2005 00:01
Forsíðu Fókus, sem fylgir DV í dag, prýðir Ásdís Sif Gunnarsdóttir. Hún opnar í dag sýningu í Gallerí Humar eða frægð, sýningarsal Smekkleysu. Myndböndin eru hennar aðall, enda lærði hún gerð þeirra bæði í listaskólum New York og Los Angeles. Ásdís er gift Ragnari Kjartanssyni, Rassa prump, og eru þau auðvitað samstíga í listinni. Sýning Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur er sú fyrsta í Smekkleysubúðinni svokölluðu, sem breytist í Gallerí Humar eða frægð með innkomu listamannsins. Humar eða frægð sýningin er fyrir á staðnum og Ásdís bætir sínu inn í hana. Að auki sýnir hún nokkur af vídeóunum sínum. Rassi fékk ríkisborgararétt "Síðan hef ég vídeóin til sölu á DVD. Með þeim fylgja síðan miniature-skúlptúrar," segir Ásdís. Hún er ekki búin að ákveða verðið á verkunum, "kannski fimm, tíu þúsund?" Sýningin kom þannig til að Einar Örn Benediktsson, Smekkleysuforkólfur og kunningi hennar, sýndi henni búðina fyrir jól. Þá leist henni svo vel á salinn að hún sagðist vilja sýna þar. Hann tók vel í það. Ásdís segir sýninguna vera bland af sækadelíu, ljóðrænu, drasli og gersemum. Verkin sameina síðan kvenlega, ljóðræna hryggð og norrænan gálgahúmor. Hún segist m.a. vera undir áhrifum frá impressjónistum og Quentin Tarantino. Ásdís lærði list sína í virtum listaskólum New York og Los Angeles. Segir mikið að gerast í myndlist í báðum borgum. L.A. hafi komið á óvart en hún hafi fílað New York betur. Það er lítið mál fyrir Ásdísi að flakka yfir til Bandaríkjanna. Hún fæddist vestanhafs og er því bæði með íslenskan og amerískan ríkisborgararétt. Þar datt Ragnar Kjartansson, Rassi prump, í lukkupottinn. Þau giftust í fyrra og fékk hann því bandarískan ríkisborgararétt í heimanmund ... Afganginn af viðtalinu við Ásdísi er að finna í Fókus. Þar er Þar er auðvitað allt að finna um skemmtanalíf helgarinnar, djammkortið er á sínum stað, sem og ítarleg umfjöllun um bíó, tónlist, myndlist og leikhús.
Menning Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira