Hlúð að verkum Samúels í Selárdal 28. júní 2005 00:01
Selárdalur er einn svonefndra Ketildala í Arnarfirði sunnanverðum. Í eina tíð var dalurinn þéttbyggður fólki en tekið var að fækka þegar Samúel Jónsson bjó að Brautarholti í mynni dalsins, þaðan sem tilkomumikil sýn er yfir fjörðinn að Lokinhömrum og Hrafnabjörgum. Samúel var kominn á efri ár þegar hann réðist í að reisa kirkju og listasafn á jörð sinni, auk listaverka. Norðanáttin á greiða leið inn í dalsmynnið og á henni hafa hús og verk Samúels fengið að kenna. Fyrir sjö árum var félag um endurreisn listasafns Samúels stofnað en auk þess að stuðla að viðgerðum og viðhaldi listaverkanna er því ætlað að kynna verk Samúels innan lands og utan. Á dögunum bárust félaginu tveir styrkir, annar úr Minningarsjóði Margrétar Björgólfsdóttur og hinn úr Þjóðhátíðarsjóði, og renna peningarnir í viðgerðir og viðhald. Ólafur J. Engilbertsson sagnfræðingur situr í stjórn félagsins og segir hann ástand verkanna hafa verið mjög slæmt þegar hafist var handa við viðgerðirnar. Þýski myndhöggvarinn Gerhard König var fenginn til verksins og er hann væntanlegur vestur aftur í sumar. "Það kostar um þrjár milljónir króna að gera við listaverkin," segir Ólafur en hann og aðrir félagsmenn hafa sett sér enn háleitari markmið um framtíð Brautarholts í Selárdal. "Félagið hefur áhuga á því að gera húsið íbúðarhæft svo fræði- og listamenn geti haft þar aðsetur og haldið sýningar." Verði ráðist í það má ætla að heildarkostnaður nemi um tíu milljónum króna. Þegar hefur húsið verið lagfært að innanverðu en er þó fjarri því að vera íbúðarhæft. Landbúnaðarráðuneytið kostaði þær framkvæmdir en ráðuneytið hefur, lögum samkvæmt, formleg yfirráð yfir jörðinni. Ólafur J. Engilbertsson hefur lengi haft áhuga á Samúel í Selárdal, sögu hans og verkum. "Ég ólst upp á Vestfjörðum og frétti að þarna í dalnum væri ævintýragarður sem væri að grotna niður." Ólafur gerði heimildarmynd um Samúel með Kára Schram kvikmyndagerðarmanni og leggur nú sitt af mörkum svo verk hans varðveitist komandi kynslóðum til ánægju og yndisauka. MYND/VilhelmMYND/VilhelmMYND/Vilhelm
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira