Dregur aðeins úr hraða Katrínar 29. ágúst 2005 00:01
Aðeins er um klukkustund í að einhver öflugasti fellibylur sögunnar skelli beint á hjarta borgarinnar New Orleans í suðurhluta Bandaríkjanna. Það hefur dregið lítið eitt úr hraða fellibylsins Katrínar og er hann nú flokkaður sem fjórða stigs fellibylur á Saffire Simpson skalanum, sem er næsthæsta stigið. Katrín æðir þó enn áfram á nærri sjötíu metra hraða á sekúndu. Í gær var öllum íbúum borgarinnar, meira en milljón manns, skipað að yfirgefa borgina og hefur verið stöðugur straumur bíla út úr henni í alla nótt. Þeir sem einhverra hluta vegna sjá sér ekki fært að fara hafa flestir safnast saman í Superdome-höllinni í New Orleans. Þar voru um 30 þúsund manns samankomnir seint í gærkvöldi. Mikil öngþveiti hafði myndast þar fyrir utan þar sem lögregla þurfti að leita á öllum sem fóru inn og höfðu sumir heilu búslóðirnar í för með sér. Eyðileggingin sem Katrín mun valda ef hún lendir beint á New Orleans verður gríðarleg, ekki síst fyrir þær sakir að borgin stendur að mestu leyti um tvo metra undir sjávarmáli. Borgin yrði algjörlega lömuð í nokkra mánuði á meðan vatni yrði dælt burt auk þess sem það tæki mun lengri tíma að koma allri starfsemi í eðlilegt horf á nýjan leik. Íbúar Missisippi og Alabama hafa einnig verið varaðir við komu Katrínar og þar hefur þegar verið lýst yfir neyðarástandi.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Fleiri fréttir Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Sjá meira