Erlent

Koizumi hyggst hraða umbótum

Eftir yfirburða kosningasigur í þingkosningunum á sunnudag hét Junichiro Koizumi forsætisráðherra því í gær að fylgja eftir áætlun um að skipta upp og einkavæða póst- og lífeyrissparnaðarkerfi landsmanna, og hraða öðrum efnahagsumbótum. Lokaúrslit kosninganna voru þau að flokkur Koizumi, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn LDP, hlaut 296 af 480 þingsætum. Aðalstjórnarandstöðuflokkurinn sat eftir í sárum og formaður hans sagði umsvifalaust af sér. Andstaða hóps stjórnarþingmanna gegn áætluninni um einkavæðingu póstsins varð til þess að Koizumi rauf þing og boðaði til kosninga. Með þessum úrslitum kosninganna stendur hann uppi með pálmann í höndunum, en hann ítrekaði samt í gær að hann hygðist hætta sem forsætisráðherra þegar kjörtímabil hans sem formaður LDP rennur út að ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×