Erlent

Ekki seinagangur vegna litarháttar

George Bush Bandaríkjaforseti hafnaði því í dag að stjórnvöld hefðu brugðist seint við hamförunum í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna þess að flest fórnarlambanna hefðu verið blökkumenn og sagði fáránlegt að halda því fram að ekki hefði verið til nægur mannafli til björgunarstarfa vegna Íraksstríðsins. Þessi orð lét forsetinn falla eftir að hafa ekið um New Orleans í dag og kynnt sér aðstæður þar í borg, en hluti borgarinnar er enn á kafi eftir flóðin. Stjórnvöld hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að hafa brugðist seint við eftir yfirreið fellibylsins Katrínar yfir suðurströnd Bandaríkjanna fyrir tveimur vikum og hafa leiðtogar blökkumanna í landinu sumir sagt það stafa af því að fjölmörg fórnarlambanna hafa verið þeldökk og fátæk. Þá hefur traust Bandaríkjamanna í garð Bush minnkað töluvert eftir hamfarirnar og ekki mælst minna frá því að hann tók við embætti. Bush, sem var í þriðju ferð sinni á flóðasvæðin og þeirri fyrstu á jörðu niðri í New Orleans, sagði mikla vinnu fram undan og að aðalatriðið væri að koma öllu í samt lag á svæðinu, nægur tími væri til þess að finna sökudólg varðandi seinagang í björgunarstörfum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×