Vilja yfirráð yfir landamærum 12. september 2005 00:01
Síðustu ísraelsku hermennirnir yfirgáfu Gasaströndina í morgun. Palestínumenn fagna þessum áfanga mjög en krefjast einnig yfirráða yfir landamærum og lofthelgi. Það var nokkuð tilfinningaþrungin stund þegar síðasta bifreiðin frá ísraelska hernum flutti síðustu hermennina frá Gasaströndinni nú snemma í morgun. Ísrael hernam svæðið árið 1967 og hafði byggt upp tugi landnemabyggða á þeim tæpu fjörutíu árin sem liðin eru síðan. Þær hafa verið rýmdar og nú þegar herinn er farinn hafa Palastínumenn tekið við yfirráðum. Mikill fögnuður braust út á meðal þeirra og streymdu Palestínumenn inn í tómar landnemabyggðirnar í morgun, kveiktu í sýnagógum og brutu og brömluðu það sem þar var að finna. Upphaflega ætluðu palestínsk yfirvöld að loka aðgangi að landnemabyggðunum fyrrverandi en það kom fljótlega í ljós að öryggissveitir heimastjórnarinnar áttu ekki nokkurn möguleika á að halda fólki í skefjum. Skiptar skoðanir eru í Ísrael um ágæti þess að láta Palestínumönnum Gasaströndina eftir án þess að krefjast einhvers í staðinn. Flestir eru þó sammála um að nú reyni á heimastjórnina, þetta muni sýna hvort Palestínumenn séu færir um að stofna eigið ríki og stjórna því. Mahmoud Abbas, forseti heimastjórnarinnar, fagnaði áfanganum en benti á að yfirráð Palestínumanna yfir svæðinu væru í raun ekki alger fyrr en þeir réðu einnig lofthelgi og landamærum. Annars gæti Gasa orðið nokkurs konar fangelsi. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels hefur sagt að hann fylgi enn vegvísinum til friðar sem gerir ráð fyrir sjálfstæðu ríki Palestínumanna en engar frekari tilslakanir verði gerðar fyrr en Abbas sýni að hann hafi stjórn á herskáum öfgahópum.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira