Erlent

Níu látnir í flóðum í Víetnam

Að minnsta kosti níu hafa látist, þar af sjö börn, í flóðum í ánni Mekong í suðurhluta Víetnams að undanförnu. Nú þegar hafa 32 þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna og hættu á aurskriðum. Óttast er að fleiri kunni að látast þar sem flóðin hafa ekki enn náð hámarki sínu, en vatnsborðið er nú þegar orðið hærra en það var hæst í fyrra. Flóð verða í Mekong á hverju ári, en þau má rekja til mikillar úrkomu í nágrannaríkinu Kambódíu þar sem áin rennur einnig. Áin flytur með sér frjósaman jarðveg fyrir hrísgrjónaakra í Suður-Víetnam í flóðunum en hún hefur einnig valdið mann- og eignatjóni. Yfirvöld hafa brugðist við þessu á undanförnum árum með því að flytja fólk fyrir fullt og allt af mestu hættusvæðunum, kenna börnum að synda og opna barnaheimili þar sem ungbarna er gætt á meðan foreldrarnir vinna á hrísgrjónaökrunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×