Kemur heim með kórónu í farteskinu 11. desember 2005 08:00 Brosað gegnum gleðitárin. Unnur Birna átti alls ekki von á að sigra í keppninni. Framundan er viðburðaríkt ár í hlutverki ungfrúar heims.
Íslendingar hafa enn einu sinni fengið staðfestingu á því að á Íslandi búa fallegustu konur veraldar. Unni Birnu hafði verið spáð góðu gengi í keppninni en sjálf lét hún væntingarnar ekki stíga sér til höfuðs. Eftir lokaæfinguna á föstudagskvöldið skrifaði hún dagbókarfærslu á vef Morgunblaðsins þar sem hún varaði fólk við því að taka spárnar of trúanlega. "Það er ekkert að marka svona spár og veðbanka og ég get lofað ykkur því, eins og ég hef gert áður, að kórónan verður ekki í ferðatöskunni þegar ég kem heim á mánudag." Nú verður Unnur Birna að ganga á bak orða sinna því kórónan góða verður svo sannarlega með í farteskinu þegar fegurðardrottningin snýr aftur heim. Keppnin var hin glæsilegasta í alla staði en um 100 keppendur frá ýmsum þjóðlöndum tóku þátt í henni. Íslenskir áhorfendur sátu límdir við skjáinn og göptu af undrun þegar úrslitin voru kunn. Fegurðardrottningin sjálf var ekki minna hissa og sagðist alls ekki hafa búist við þessu. "Ég hélt þetta væri komið gott þegar ég var komin í sex manna úrslit og átti alls ekki von á að ná lengra," sagði fegurðardrottningin í samtali við NFS í gær. Heiðar Jónsson lýsti keppninni á Skjá einum og var að vonum ánægður með árangur Unnar. "Ég átti reyndar alveg von á þessu og þegar það var ljóst að ungfrú Filippseyjar kæmist ekki í úrslit var ég viss um að Unnur myndi vinna," segir Heiðar og bætir því við að keppnin hafi verið mjög spennandi. "Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir því að þetta er gríðarlega vinsælt sjónvarpsefni og þar af leiðandi mikil landkynning. Fegurðarsamkeppnir hafa verið misvinsælar í gegnum tíðina en núna eru þær á hápunkti á heimsmælikvarða. Þótt áhuginn í Norður-Evrópu hafi minnkað þá er víða borin gríðarleg virðing fyrir keppninni og því á Unnur eflaust eftir að bera hróður Íslands víða. Titillinn gefur henni líka ótrúleg tækifæri. Hún mun ferðast um heiminn og sinna góðgerðarmálum," segir Heiðar sem er ekki í nokkrum vafa um hvers vegna heimsbyggðin valdi Unni. "Hver sá sem hittir þessa stúlku kemst að því að hún á þennan titil svo sannarlega skilið. Um leið og þú kynnist henni þá gleymirðu hvað hún er falleg. Hún er svo góð og hlý og klár þannig að eftir klukkutíma viðkynningu þá skiptir engu hvort hún er sæt eða ekki," segir Heiðar. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og kona hans, Dorrit Moussaieff, sendi Unni Birnu eftirfarandi heillaóskir: "Við óskum þér til hamingju með glæsilegan árangur. Þú ert landi og þjóð til sóma."
Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira