Vill óháða úttekt á öryrkjaskýrslunni 10. desember 2005 05:00 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: "Meðaltekjur öryrkja hafa ekki þróast eins og annarra samfélagsborgara."
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur ákveðið að fá óháðan aðila til þess að fara yfir niðurstöður skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors um öryrkja og velferð. Þetta kom fram í utandagskrárumræðum um öryrkja og velferð á Alþingi í gær. Ráðherrar og stjórnarliðar lýstu vanþóknun sinni á umræddri skýrslu. "Þessi skýrsla olli mér miklum vonbrigðum. Hér er kostað til miklum tíma og miklum peningum og fenginn til þess kunnur fræðimaður, gamall baráttufélagi úr launþegahreyfingunni. Og niðurstaðan er svo full af rangfærslum - þar sem verið er að bera saman ósambærilega hluti, sleppt úr heilu bótaflokkunum og nýjustu upplýsingar ekki notaðar - að það gerir hana nánast ónothæfa í þessari umræðu," sagði Árni Mathiesen fjármálaráðherra. Málshefjandi var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Hún sagði meðal annars að skattastefna stjórnvalda hefði gert kjarabætur öryrkja að engu. Tekjutryggingarauki og aldurstengd uppbót færi öll í skatta. Góðærið hefði farið framhjá hópi öryrkja og íslenska samfélagið ætti erfitt með að þola slíkt. Kröfur væru háværar, ekki síst frá öryrkjum og öldruðum, um að spornað yrði gegn þessu. "Meðaltekjur þeirra hafa ekki þróast eins og annarra samfélagsborgara." "Það gengur ekki að byggja umræðuna á stagli um þessar tölur," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Hann kvaðst enga ástæðu hafa til þess að véfengja tölur embættismanna og undraðist að Stefán vildi ekki leiðrétta niðurstöður sínar. Þuríður Backman Vinstri grænum, sagði að skattbyrði einhleypra öryrkja hefði hækkað á umræddu tímabili úr 7,4 prósentum af heildartekjum að jafnaði í 17,1 prósent á síðasta ári. "Skattleysismörk ættu að vera 102 þúsund krónur ef þau hefðu fylgt verðlagi en eru nú rúmar 75 þúsund krónur í dag." "Hvergi í heiminum á síðustu tíu árum hafa lífskjör batnað meira og betur... Og öryrkjar og eldri borgarar og hverjir sem eru hafa allir notið þess," sagði Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki. "Ef menn vilja draga úr skerðingum eru menn líka að draga úr jöfnun," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra.
Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjá meira