Gjörbreyttur tónlistarstíll 9. desember 2005 16:00 Nilfisk. Hljómsveitin samanstendur af þeim Jóhanni Vigni Vilbergssyni (söngur og gítar), Víði Björnssyni (gítar), Sveini Ásgeiri Jónssyni (trommur) og Sigurjóni Dan Vilhjálmssyni (bassi).
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Nilfisk, Don"t Run After Your Own Apples, er komin út. Platan er níu laga og hefur verið í bígerð síðustu tvö ár. Að sögn Víðis Björnssonar gítarleikara eru bæði glæný lög og tveggja ára gömul lög á plötunni. Upptökur fóru fram í vor og kláruðust í haust. "Það hefur verið sagt við okkur að þetta sé dans-gleði-bílskúrsrokk og ég held að það sé bara besta lýsingin á plötunni," segir Víðir. Hann viðurkennir að Nilfisk hafi tekið miklum breytingum síðan hún var stofnuð þann 10. mars 2003, en skömmu síðar hitaði hún upp fyrir Foo Fighters í Laugardalshöllinni. "Hún hefur gjörsamlega breytt um tónlistarstíl, enda geturðu alveg heyrt það ef þú hlustar á plötuna. Við ákváðum að leyfa þessum gömlu lögum að vera með," segir hann. Lagið On Display af plötunni er til sölu á heimasíðunni Real Networks í Bretlandi sem tvær milljónir tónlistaráhugamanna skoða reglulega. Lagið hefur slegið í gegn á síðunni og er með fjórar stjörnur af fimm í einkunn, sem er sú hæsta á síðunni. Aðspurður segir Víðir að ýmislegt sé í pípunum varðandi frekari kynningu erlendis á næstunni. Sveitin mun spila í Danmörku næsta sumar og ætlar síðan að halda tónleika í Wisconsin í Bandaríkjunum en krakkar þaðan heimsóttu einmitt Stokkseyri, heimabæ Nilfisk, í sumar á sama tíma og góðvinir sveitarinnar, Foo Figters, voru í heimsókn. Fleiri tónleikar í Bandaríkjunum eru fyrirhugaðir á sama tíma. Einnig mun Nilfisk líklega spila í Síberíu á næsta ári. "Það er maður á Stokkseyri sem á tvinnaverksmiðju sem ætlar að reyna að koma okkur að þar. Við munum örugglega spila á einhverjum sveittum börum. Síðan er ýmislegt fleira á döfinni sem er ekki hægt að segja frá núna," segir Víðir, þögull sem gröfin. Hann segir að Nilfisk sé ennþá í sambandi við Foo Fighters. Af og til fái þeir tölvupóst frá hljómsveitarmeðlimum og nýlega báðu þeir um Nilfisk-boli fyrir rótarana. Einnig fékk rótarinn Shawn sendan til sín harðfisk sem hann ku vera alveg brjálaður í. Nýja platan verður síðan send út á næstu dögum. Þá geta Foo Fighters skorið úr um hvort Nilfisk hafi tekið einhverjum framförum síðan síðast. Nilfisk heldur sína fyrstu útgáfutónleika vegna plötunnar á Skuggabarnum á Stokkseyri á föstudag klukkan 18.00. Síðar í mánuðinum verða síðan aðrir útgáfutónleikar í Reykjavík. Tónleikaferð um landið er svo fyrirhuguð í janúar.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira