Gibson hefur nóg á sinni könnu 8. desember 2005 15:15 Mel Gibson. The Passion of Christ vakti töluvert sterk viðbrögð en velgengni hennar hefur gefið Gibson leyfi til að gera hvað sem er.
Mel Gibson hefur í fyrsta skipti tjáð sig um sitt næsta verkefni sem ber heitið Apocalypto. Mikil leynd hefur hvílt yfir henni en eftir velgengni The Passion of Christ getur Mel Gibson gert hvað sem er... og þá þýðir það hvað sem er. Það hefur til að mynda enginn kippt sér upp við það að Apocalypto á að gerast fyrir sex hundruð árum hjá Mayum og mun víst varpa ljósi á hið undarlega hrun menningarþjóðarinnar áður en Spánverjar námu land í Mið-Ameríku. Ekki skemmir fyrir að myndin er öll töluð á fornri tungu þessa samfélags og í öllum helstu hlutverkum eru alveg óþekktir leikarar. "Ég tel að með þessari mynd getum við skoðað samtíma okkar í nýju ljósi," sagði Gibson við blaðamenn á dögunum. Nafn myndarinnar er úr grísku og þýðir nýtt upphaf. Þetta er þó ekki það eina sem Mel Gibson hyggst gera á næstunni. Hann ætlar að framleiða sjónvarpsmyndina Flory sem er byggð á sannsögulegum atburðum. Segir hún sögu gyðingastúlkunnar Flory Van Beek en hún naut aðstoðar hollensks kærasta síns sem bjargaði henni frá útrýmingarbúðum nasista í seinni heimstyrjöldinni. Gibson er ekki besti vinur gyðingasamfélagsins í Bandaríkjunum því The Passion of Christ vakti töluverða reiði þeirra á meðal þar sem talið var að leikstjórinn drægi upp frekar dökka mynd af yfirmönnum trúarsamfélags þeirra á tímum Jesú. Reyndar hefur ekkert verið ákveðið hvort farið verði út í þessa framleiðslu en ljóst er að ef af verður á hún eftir að vekja mikla athygli.
Menning Mest lesið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Dorrit á trampólíni Lífið Fleiri fréttir Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Sjá meira