Goðsögnin lifir áfram 8. desember 2005 16:45 John og Yoko. Þessi mynd var tekin af hjónunum í New York í ágúst 1980.
Aldarfjórðungur er í dag liðinn frá því Bítillinn fyrrverandi John Lennon var myrtur fyrir utan Dakóta-bygginguna í New York. Lennon var aðeins fertugur þegar ódæðið var framið. Sökudólgurinn var Mark Chapman, sem fyrr um daginn hafði fengið eiginhandaráritun hjá goðinu. Þegar Lennon sneri aftur ásamt eiginkonu sinni Yoko Ono úr upptökuveri seint um kvöldið tók Chapman fram byssu sína og hleypti fjórum skotum af. Þrjú þeirra fóru í bak Lennons og skömmu síðar lést hann á leiðinni á sjúkrahúsið. Þegar Lennon var myrtur hafði hann nýlega fengið andann yfir sig á ný og var farinn að semja tónlist eftir fimm ára hlé. Platan Double Fantasy sem hann gerði með Yoko var gefin út mánuði fyrir dauða Lennons. Vann hún Grammy-verðlaunin árið eftir sem besta platan. Þykir fráfall Lennons sérlega sorglegt af þessum sökum.Einn af hötuðustu mönnum veraldar@Mynd -FoMed 6,5p CP:í handjárnum Chapman leiddur í burtu af lögreglunni eftir að hafa verið handtekinn fyrir morðið.Mark Chapman hefur verið einn af hötuðustu mönnum veraldar síðan hann skaut Lennon. Hvað rak hann til verknaðarins er erfitt að segja, en hann þjáðist af þunglyndi og virtist telja sig öðlast einhvers konar sess í þjóðfélaginu með morðinu. Árið 1977 reyndi hann sjálfsvíg með því að anda að sér eiturgufum úr bíl sínum og eftir það fékk hann bók JD Salinger, The Catcher in the Rye, á heilann. Sá hann sjálfan sig í aðalpersónunni, sem átti erfitt með að aðlagast samfélaginu. Í kjölfarið fór hann að hata Lennon. Eftir að hann sá ljósmynd af Lennon þar sem hann stóð á þaki Dakóta-byggingarinnar gerðist eitthvað í hausnum á honum. "Ég man að ég sagði við sjálfan mig, "Hvað ef ég drep hann"," sagði Chapman eitt sinn. Í lögregluskýrslu hafði Chapman þetta að segja: "Lítill hluti af mér skilur ekki heiminn og hvað er að gerast í honum. Ég vil ekki drepa neinn og ég veit eiginlega ekki hvers vegna ég gerði þetta." Chapman játaði sig sekan í réttarhöldum sem stóðu yfir í stuttan tíma árið 1981. Hann var dæmdur í tuttugu ára fangelsi eða til lífstíðar fengi hann ekki reynslulausn. Þrisvar sinnum hefur honum verið neitað um reynslulausn í Attica-fangelsinu í New York þar sem hann dúsir og kemur það fáum á óvart. Sólóplötur í bílförmum@Mynd -FoMed 6,5p CP:fyrir utan dakóta Hátt í 5000 manns söfnuðust saman fyrir utan Dakóta-bygginguna um leið og fregnir bárust af morðinu.Þrátt fyrir ódæði Chapmans hefur goðsögnin John Lennon haldið áfram að lifa. Plötur Bítlanna jafnt sem sólóplötur Lennons halda áfram að seljast í bílförmum auk þess sem reglulega koma út safnplötur með bæði Bítlunum og Lennon sem hafa einnig rokið út, þar á meðal ein með Lennon fyrir skömmu síðan. Lennon er næstum daglega í fréttunum þótt hann sé löngu dáinn. Segir það margt um hversu mikil áhrif hann hefur haft á heiminn með tónlist sinni og baráttu fyrir friði í heiminum. Chapman fær þó einnig sinn skerf af athyglinni á næstunni því ný kvikmynd um hann og dagana sem liðu fram að morðinu á Lennon er væntanleg með stjörnunum Jared Leto og Lindsay Lohan í aðalhlutverkum. Þá getur fólk glöggvað sig enn frekar á tildrögum morðsins á John Lennon. n
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira