Lífið

Tónleikar til heiðurs Rabba

Rabbi  - Rafn Jónsson hefði orðið 51 árs í dag hefði hann ekki tapað í baráttunni við illvígan sjúkdóm.
Rabbi - Rafn Jónsson hefði orðið 51 árs í dag hefði hann ekki tapað í baráttunni við illvígan sjúkdóm.

Vinir, vandamenn og velunnarar Rafns Jónssonar heitins, eða Rabba, halda tónleika á Grand Rokki í kvöld til að heiðra minningu hans. Rabbi, sem lést síðasta sumar, hefði orðið 51 árs í dag.

Á tónleikunum, sem verða órafmagnaðir, koma fram Ragnar Sólberg og Egill Örn, synir Rabba, ásamt hljómsveitinni Sign og Rúnar Þórisson ásamt Kalla og dóttur sinni Láru. Heiðar Örn Kristjánsson kemur einnig fram undir nafninu The Viking Giant Show. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og er aðgangur ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.