
Lífið
Leiðarvísir að Stuart Price

Les Rhythmes Digitales - Darkdancer (1999)Stuart Price hefur aldrei gefið út tónlist undir eigin nafni. Hann kallaði sig lengi Jacques Lu Cont og gaf út undir hljómsveitarnafninu Les Rhythmes Digitales. Á annarri plötu sinni blandaði hann saman áhrifum frá sykursætu poppi níunda áratugarins við nútímalegt house og breakbít. Hann gekk jafnvel svo langt að fá söngvarann Nik Kershaw sem gestasöngvara í einu lagi. Eftir útgáfu annarrar plötu sinnar varð hann vel þekktur fyrir útsetningar sínar, og samstarfið við Madonnu hófst stuttu síðar. Hann hefur líka gert endurhljóðblandanir fyrir Goldfrapp, No Doubt og Cornershop. Zoot Woman - Living in a Magazine (2001)Stuart Price kynntist bræðrunum Johnny og Adam Blake í skóla í Reading. Tónlist sveitarinnar minnir stundum á Human League, New Order eða Pet Shop Boys. Þrátt fyrir að vera liðsmaður sveitarinnar var Stuart ekki með þegar Zoot Woman léku fyrir gesti Airwaves hátíðarinnar nú síðast.