Það besta við jólin 7. desember 2005 10:00 Þórunn Guðmundsdóttir syngur um ýmsar hliðar jólanna á nýjum geisladiski sínum. "
Það besta við jólin er að éta," segir Þórunn Guðmundsdóttir í samnefndu lagi, sem komið er út á geisladiski með fimmtán nýjum jólalögum sem hún hefur samið á síðustu árum. Þórunn er söngkennari og hefur auk þess starfað mikið með áhugaleikfélaginu Hugleik, meðal annars samdi hún söngleikinn Kolrössu sem sýndur var við miklar vinsældir fyrir nokkrum árum. "Það er svo margt skrítið og skemmtilegt við jólin," segir Þórunn en tekur fram að hún sé engan veginn að gera lítið úr jólunum þótt hún bregði á leik í sumum laganna og slái á létta strengi. "Jólin eru stórkostlegt fyrirbæri en það eru svo margar hliðar á þeim ekki síst ýmislegt sem er óskiljanlegt eins og þetta með könnur uppi á stólunum og allar þessar verur sem taka upp á ótrúlegustu hlutum og virðast bara eiga heima á Íslandi." Lögin á diskinum eru mjög fjölbreytileg, allt frá klassískum kórlögum og djasssveiflu til laga með þjóðlegum tóni sem gætu sem hægast verið rótgróin íslensk þjóðlög. Þórunn Guðmundsdóttir hefur doktorspróf í söng og kennir sönglist í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónlistarskólanum í Reykjavík. Flest laganna syngur hún sjálf en við flutninginn nýtur hún aðstoðar samkennara sinna, Hjörleifs Valssonar fiðluleikara og Þrastar Þorbjörnssonar gítarleikara sem og Birgis Bragasonar bassaleikara og Ástvalds Traustasonar píanóleikara. Fyrrverandi nemendur Þórunnar, tenórarnir Eyjólfur Eyjólfsson og Bragi Bergþórsson, syngja hvor sitt lagið. Þá flytur Kammerkór Hafnarfjarðar þrjú lög á diskinum. Sjálf segist Þórunn reyndar ekki hafa gert mikið af því að semja tónlist. "Aðallega hefur það verið í tengslum við leikfélagið Hugleik. Þessi jólalög hef ég verið að semja undanfarin ár fyrir jólaskemmtanir sem Hugleikur hefur haldið, svona þrjú til fjögur lög á hverju ári. En núna er ég reyndar að semja óperu," upplýsir hún. Sú ópera á að heita Marþallarsaga og er fyrst og fremst hugsuð sem skólaópera fyrir nemendur sem eru langt komnir í söngnámi. "Hún er byggð á gömlu íslensku ævintýri sem fjallar um hertogadóttur sem getur grátið gulli en það færir henni ekki endilega mikla gæfu."
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira