Tónlistin endurheimt fyrir útgáfutónleika 7. desember 2005 15:30 Kira kira er einn af stofnendum tilraunaeldhússins en hún gaf út plötu nýverið.
Kira Kira kemur fram á útgáfutónleikum Smekkleysu sem verða haldnir á Nasa í kvöld klukkan 21.00. Aðrir sem koma fram eru Hairdoctor, Megasukk og Siggi Ármann. Alfons X og Ben Frost þeyta skífum á milli atriða. Hópur tónlistarmanna leggur Kiru Kiru, sem heitir réttu nafni Kristín Björk Kristjánsdóttir, lið á tónleikunum. Þar á meðal er Rúna Esradóttir, kærasta Mugison, sem spilar á píanó og klukkuspil, Þráinn Óskarsson úr Hudson Wayne sem syngur og spilar á gítar og pumpuorgel og Sigtryggur Baldursson sem mundar trommukjuðana. "Ég hóaði í nokkra góða vini sem ætla að spila músíkina með mér. Ég hef rekið mig á það á þessum tilraunaeldhússferðalögum um heiminn að það hefur verið langmesta stuðið þegar mér hefur tekist að kippa einhverjum með mér. Þegar maður er í heimabæ sínum liggur beint við að nota það tækifæri og safna liði," segir Kristín Björk. Kristín, sem er einn af stofnendum Tilraunaeldhússins, gaf nýverið út sína fyrstu stóru plötu sem ber heitið Skotta. Um svipað leyti var fartölvu hennar stolið stútfullri af tónlist og óskaði hún þess að fá verðmætin aftur í Fréttablaðinu skömmu síðar. Tónlistin skilaði sér en ekki tókst að endurheimta tölvuna. "Það voru góðir menn sem sóttu hana ofan í undirdjúpin handa mér," segir Kristín. "Ég var alveg tilbúin að bretta upp ermarnar. Ég safnaði bara liði og var komin upp í níu manna hljómsveit áður en ég vissi af. Ég ætlaði ekkert að láta þennan draum kafna. Ég var í mörg ár að vinna í plötunni og hlakkaði til að halda útgáfuhúllumhæ. Ég ætlaði ekki að láta skjóta mig í kaf. En það er óneitanlega stórkostlegt að þetta sé komið til mín aftur," segir hún. Að sögn Kristínar eru tónleikar hennar misjafnir í hvert skipti sem hún kemur fram. "Mér finnst skemmtilegt að búa alltaf til nýja og nýja pælingu fyrir hverja tónleika. Þó að við séum níu á útgáfutónleikunum verðum við kannski bara ég og Rúna á næstu tónleikum. Við höfum svolítið verið að hittast heima í stofu og bauka eitthvað," segir Kristín. Munu þær meðal annars koma fram 17. desember í Jólaseríu Tilraunaeldhússins sem hófst fyrir viku. Þar verður kántrístemningin í fyrirrúmi. Miðaverð á útgáfutónleikana í kvöld er 500 krónur.
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira