Áttu meistaraverk? 7. desember 2005 10:15 Telpur með brúðu frá 1943. Eftir Snorra Arinbjarnar.
Listasafn Íslands leitar að verkum eftir Snorra Arinbjarnar og Gunnlaug Blöndal. Listasafn Íslands ætlar að halda sýningar snemma á næsta ári á verkum málaranna Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugs Blöndal. Þetta verða tvær aðskildar sýningar en nú hefur staðið yfir heimildaöflun hjá safninu á verkum þessara málara. Harpa Þórsdóttir, deildarstjóri sýningadeildar safnsins, segir aðspurð að safnið auglýsi reglulega eftir listaverkum í einkaeigu, sérstaklega þegar um yfirlitssýningar sé að ræða því þá sé mikilvægt að geta haft tilfinningu fyrir öllu því sem listamaðurinn hafi fengist við, lífsstarfi hans. "Ferill og allar tiltækar heimildir sem skrifaðar hafa verið um viðkomandi eru rannsakaðar og oft gefa slíkar sýningar tilefni til útgáfu bóka um viðkomandi listamann. Það stendur einmitt til í þessum tilvikum að gefa út veglegar sýningarskrár," segir Harpa.Er fólk duglegt að láta vita af verkum sem það á?@Mynd -FoMed 6,5p CP:Málverk af konu Eftir Gunnlaug Blöndal."Svona almennt litið held ég að flestir sem eiga listaverk eftir þjóðkunna listamenn skilji mikilvægi þess að verða við slíkri beiðni þegar hún kemur frá söfnum. Þetta snýst ekki um að fólk meti sjálft hvort verkið eigi erindi á sýningu heldur að það láti listasafnið vita að það eigi það sem ég kýs að kalla menningarverðmæti, sem varpar ljósi á menningarsögu okkar allra. Hvort verk fari á sýningu eða ekki er svo allt annar handleggur og ræðst af mörgum þáttum, stundum kærir fólk sig ekki um að lána listaverk til almennrar sýningar og það þarf alltaf að fara fram visst val eftir fyrir fram gefnum forsendum áður en sýningarstjóri velur listaverk inn á sýningu. En starfsfólk Listasafns Íslands er sífellt að vinna rannsóknarvinnu og vinna í gagnagrunna um listaverk þannig að við erum að skrásetja menningararfinn ef svo má að orði komast."En eiga þá ekki allir sem eiga listaverk að hafa samband og láta skrá verkin hjá ykkur?"Nei, því miður gæti það ekki gengið upp. Við verðum að fá að ráða því hverju sinni hvaða listamenn eru til umfjöllunar, annað væri ógerningur fyrir okkur. Við erum aðeins að skrá verkin á okkar forsendum og allar slíkar skrásetningar eru trúnaðarmál milli safnsins og viðkomandi eiganda sem tilkynnir verkið. Við gætum ekki haft það öðruvísi og söfn geta aldrei orðið einhvers konar bankar upplýsinga um listaverk í einkaeigu, það gengur ekki upp. Það erum við hins vegar gagnvart okkar eigin listaverkum og erum einmitt að vinna mikla vinnu í því sambandi að gera alla safneign Listasafns Íslands aðgengilega á rafrænu formi."Þeir sem eiga listaverk eftir málarana Snorra Arinbjarnar og Gunnlaug Blöndal sem hafa ekki verið tilkynnt til Listasafns Íslands eru beðnir um að hafa samband við Hörpu Þórsdóttur deildarstjóra sýningardeildar í Listasafni Íslands sem fyrst, harpa@listasafn.is og í síma 515 9600.
Menning Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira