Háseti missti fót við ökkla 6. desember 2005 06:30 Togspil fyrir troll. Háseti flæktist í spili ekki ósvipuðu þessu fyrr á árinu.
Skipstjóri á togveiðibáti hefur verið dæmdur í mánaðarfangelsi og sviptur skipsstjórnarréttindum í þrjá mánuði vegna slyss sem varð um borð vestur af Sandgerði 10. mars sl. Fangelsisvistin var skilorðsbundinn í þrjú ár. 23 ára gamall háseti hagræddi tógi sem kom út af vindu á þilfari þegar vinstri fótur hans flæktist og dróst inn í vinduna. Henni stýrði skipstjórinn úr brú skipsins og sá ekki til þegar slysið varð. Vindunni var venjulega stýrt af þilfarinu af vélstjóra og var það gert að reglu eftir slysið. Þegar vinding var stöðvuð var hásetinn fastur upp að nára í tromlu vindunnar. Talið er að fótur hans hafi lent í lykkju sem svo hafi hert að kálfa rétt fyrir neðan vinstra hné. Við þetta dróst hold af leggnum sem svo fór í sundur niður við ökla. Töluverðar skemmdir urðu einnig á mjúkvefjum sem teygðust með og þurfti síðar að fjarlægja með aðgerð líflausa og sýkta húðflipa. Hásetinn var fluttur sárþjáður með þyrlu á sysadeild Landspítalans og hefur verið meira og minna á sjúkrahúsi síðan. Mat dómsins var að skipstjórinn hefði sýnt stórkostlegt gáleysi, en hann þarf einnig að greiða 300.000 krónur í sekt. Dóminn kváðu upp Pétur Guðgeirsson dómsformaður, Jón Finnbjörnsson héraðsdómari og Vilberg Magni Óskarsson, kennari við Fjöltækniskóla Íslands, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi.
Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira