Safnað á fölskum forsendum 6. desember 2005 07:45
Félagsmál Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi er ósátt við hvernig Mæðrastyrksnefnd Reykavíkur kynnir sig þegar styrkjum er safnað fyrir jólin. "Það er óeðlilegt að hringja og kynna sig bara sem Mæðrastyrksnefnd. Á landinu starfa sjö slíkar," segir María Marta Einarsdóttir, gjaldkeri Mæðrastyrksnefndar í Kópavogi. María segir að árviss fjárstyrkur Toyota til Mæðrastyrksnefndar í Kópavogi hafi nú runnið til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. "Við bentum þeim á þetta og var auðvitað tekið mjög vel," segir María, en fyrirtækið ákvað að aðstoða nefndina í Kópavogi líka, þó ekki með fjárstyrk. "Mæðrastyrksnefnd í Reykjavík sinnir eingöngu Reykvíkingum en kynnir sig sem Mæðrastyrksnefnd og fólk heldur náttúrlega að það sé allt landið," segir María og nefnir Grindavík, Hafnarfjörð, Garðabæ, Selfoss og Þorlákshöfn. "Svo finnst okkur sárt að heyra að fyrirtæki í okkar heimabæ séu búin að styrkja þegar við erum að leita eftir stuðningi. Þá hafa þau styrkt Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og hafa gert það á röngum forsendum því þetta eru ekki landssamtök." Aðalheiður Frantzdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, segir misskilning að nefndin styrki ekki aðra en Reykvíkinga og telur því ekki óeðlilegt að nefndin leiti víða fanga með styrki fyrir jólin. "Núna fyrir jólin erum við til dæmis í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar og hingað kemur fólk af öllu landinu og sækir til okkar," segir Aðalheiður. Þá áréttar Aðalheiður að Mæðrastyrksnefnd safni ekki peningum nema fyrir jól. Þá sé lokið sölu á geisladiski sem gefinn var út undir nafni Mæðrastyrksnefndar. "Ég held að allir viti hvað Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur er, en hún er 76 ára og að henni standa átta kvenfélög," segir hún og telur ekki að fólk geti ruglað henni við aðrar nefndir.
Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira