Strax komnar í jólaskapið 1. desember 2005 12:30 Léttsveit Reykjavíkur syngur jólalög frá ýmsum heimshornum í Langholtskirkju.
Hundrað og sextíu konur ætla að syngja jólalög frá ýmsum heimshornum í Langholtskirkju í kvöld. Þar er á ferðinni kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur ásamt Ragnheiði Gröndal og valinkunnum hljóðfæraleikurum. "Kosturinn er sá að maður hefur það að atvinnu að gleðja aðra og syngja jólin inn," segir Jóhanna Þórhallsdóttir, stjórnandi kvennakórsins Léttsveit Reykjavíkur. Hún hefur nóg að gera þessa dagana, eins og annað tónlistarfólk, því aðventan er skollin á með jólatónleikum á nánast hverju horni. "Maður er út um allt, en þetta er líka óskaplega gefandi og skemmtilegt. Maður er strax kominn í jólaskapið." Léttsveitin heldur sína jólatónleika í Langholtskirkju í kvöld og á laugardaginn og hafa tónleikarnir yfirskriftina "Jólin alls staðar". Með kórnum syngur Ragnheiður Gröndal einsöng, en hljóðfæraleikarar kvöldsins eru Haukur Gröndal, Eyjólfur Þorleifsson, Kristín J. Þorsteinsdóttir, Tómas R. Einarsson og Aðalheiður Þorsteinsdóttir, undirleikari kórsins. "Við ætlum að flytja jólalög úr ýmsum áttum, bæði spænsk og afrísk og íslensk. Ragnheiður syngur meðal annars Ave Maríu eftir Kaldalóns og svo syngur hún sín eigin lög." Kórinn hefur haldið upp á tíu ára afmæli sitt á þessu ári með ýmsu móti. Meðal annars gerði Silja Hauksdóttir kvikmynd um kórinn, sem frumsýnd var í haust og heitir einfaldlega Kórinn. Einnig er kórinn að gefa út disk, sem væntanlegur er á markað í dag. "Það er ekki jólaplata," segir Jóhanna, "heldur eru þetta tónleikaupptökur frá síðastliðinum tíu árum. Upptökur með ýmsum listamönnum eins og til dæmis Rússibönum, Snorra Wium, Wilmu Young og náttúrlega Tomma og Öllu sem fylgja okkur alltaf."
Menning Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Laufey á landinu Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Sjá meira