Damien Rice til Íslands 30. nóvember 2005 05:00 Dmien Rice. Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice er á leiðinni hingað til lands í janúar.
Írski tónlistarmaðurinn Damien Rice hefur samþykkt að koma fram á tónleikum í Laugardalshöll 7. janúar til eflingar náttúruvernd á Íslandi. Með honum í för verður söngkonan Lisa Hannigan sem hefur sungið mikið með honum í gegnum árin. Áður höfðu stór nöfn á borð við Björk, Damon Albarn, Sigur Rós, Hjálma, Ham, Múm, Egó og Gostigital staðfest komu sína. Hópurinn kallar sig nú Hætta! "Ég hringdi í hann og spurði hvort hann væri til í þetta og hann sagði bara "auðvitað"," segir Kári Sturluson, góðvinur Damien Rice, sem nýverið stóð fyrir vel heppnuðum tónleikum Sigur Rósar í Höllinni. Að sögn Kára er Rice önnum kafinn um þessar mundir við upptökur á næstu plötu sinni. Þrátt fyrir það ákvað hann að taka sér pásu frá upptökunum í janúar til að spila hér á landi enda ekki á hverjum degi sem slíkt er í boði. Rice sló í gegn fyrir tveimur árum síðan með fyrstu plötu sinni O og var tónlist hans meðal annars notuð í hinni margverðlaunuðu mynd Closer. Hann spilaði hér á landi síðast á Nasa í september í fyrra ásamt Lisu Hannigan við frábærar undirtektir. Koma hans hingað til lands er mikill fengur fyrir tónlistarunnendur. Með tónleikunum í Höllinni vilja skipuleggjendur og tónlistarmenn beina athyglinni að náttúru Íslands og því að hún sé ekki sjálfsögð uppspretta raforkuvera eða álvera. Miðasala á tónleikana hefst á morgun á midi.is og í verslunum 12 Tóna, Smekkleysu, BT og Skífunnar og í Kaffi Hljómalind. Miðaverð er 3000 krónur í stúku en 2500 í stæði auk miðagjalds.
Menning Mest lesið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Sjá meira