Bótaskylda Vegagerðar viðurkennd 29. nóvember 2005 06:00 Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segist enn ekkert hafa heyrt frá Íslenskum aðalverktökum vegna Hæstaréttardóms sem féll þeim nýverið í vil.
Hæstiréttur hefur viðurkennt bótaskyldu Vegagerðar ríkisins við Íslenska aðalverktaka og erlenda verktakafyrirtækið NCC International vegna þess að hætt var við gerð Héðinsfjarðarganga sumarið 2003. Ríkisstjórnin hafði þá samþykkt að fresta framkvæmd verksins vegna þensluástands sem í uppsiglingu væri í þjóðfélaginu og því fékk Vegagerðin ekki peninga til verksins og tilkynnti bjóðendum það bréfleiðis. Munurinn á tilboði verktakanna og kostnaðaráætlun verksins er um 190 milljónir króna, en samkvæmt heimildum blaðsins verður bótakrafa verktakanna vel yfir þeirri upphæð. Dómur Hæstaréttar féll 17. þessa mánaðar og hafa verktakafyrirtækin enn ekki farið fram á viðræður við Vegagerðina vegna hans. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir því á þessu stigi ekki hægt að meta hverjar mögulegar bætur kynnu að verða. "Það var viðurkennd skaðabótaskylda út af því að ekki hafi verið nógu frambærilegar ástæður til að hætta við útboðið. Að vísu er tekið fram í dómsorðinu að það liggi við að Vegagerðin sé ekki aðili másins. Dómurinn velur samt sem áður að vísa málinu ekki frá á þeim grunni, því eftir sem áður snýr þetta allt að ríkinu. En Vegagerðin er náttúrlega ekki ákvörðunaraðili í málinu." Vegamálastjóri segir mögulegar bætur snúa að því fyrirtæki sem hagkvæmast hafi boðið. "Þeir sem buðu lægsta upphæð voru fyrirtækin sem höfðuðu málið, en hvort það tilboð var endilega hagkvæmast get ég ekki svarað á þessu stigi," segir hann og telur ekki ólíklegt að málið endi á borði dómstóla til úrlausnar. "Fyrst þyrftu þá væntanlega að fara fram einhverjar viðræður milli aðila, en eftir þeim hefur ekki enn verið óskað." Jón Rögnvaldsson segir ákaflega sjaldgæft að hætt sé við útboð líkt og raunin hafi orðið með Héðinsfjarðargöng. "Við höfum í því ákaflega litla reynslu. Á sínum tíma voru hins vegar í gangi viðræður við Aðalverktaka, fyrir hönd þessara aðila, varðandi hugsanlega endurgreiðslu á kostnaði við tilboðsgerðina. Þær viðræður gufuðu svo einhvern vegin upp." Lögmaður Íslenskra aðalverktaka og NCC International hefur málið á sinni könnu og mun þess að vænta innan tíðar að farið verði fram á viðræður við Vegagerðina. Auk þess að viðurkenna bótarétt Aðalverktaka og NCC gerði Hæstiréttur Vegagerðinni að greiða þeim 1,8 milljónir króna í málskostnað bæði fyrir héraði og í Hæstarétti.
Innlent Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust á Seltjarnarnesi og hluta Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Sjá meira