Litháar á þrælakjörum hjá íslensku þjónustufyrirtæki 29. nóvember 2005 03:30 Skýrt og alvarlegt brot. Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, segir brotið skýrt og alvarlegt.
Verslunar- og þjónustufyrirtæki í Reykjavík hefur fengið að minnsta kosti þrjá Litháa hingað til lands til að vinna á lager fyrirtækisins. Þetta er gert á vegum starfsmannaleigu í Litháen sem ber íslenskt nafn og íslenskur karlmaður er skráður fyrir. Ekki er vitað meira um leiguna eða nákvæmlega hversu margir starfsmennirnir eru eða hafa verið en verið er að rannsaka málið á vegum ASÍ. Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, segir að Litháarnir hafi verið fengnir hingað á kjörum sem séu víðs fjarri kjarasamningum hér á landi. Verið sé að kanna réttarstöðu þessara starfsmanna og málið fari sinn gang innan kerfisins en þetta sé í fyrsta skipti sem svona mál komi upp í þjónustugeiranum, áður hafi þetta verið mest í framkvæmdageiranum. "Ráðningarsamningarnir sýna þrælakjör," segir Magnús og telur að starfsmennirnir fái um sextíu þúsund krónur á mánuði sem er langt undir lágmarkskjörum Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Fólkið hefði átt að fá greitt samkvæmt þeim taxta. Rannsókn ASÍ gengur hægt enda segir Magnús að þjónustufyrirtækið sé ekki mjög viljugt til að gefa upplýsingar en Litháarnir komu hingað á vegum starfsmannaleigunnar. Þá segir Magnús að það hái ASÍ að frumvarp félagsmálaráðherra sé ekki komið í gegnum þingið. "Þegar svona skýr og alvarleg brot eru framin þá gæti Vinnumálastofnun stöðvað tímabundið starfsemi fyrirtækisins ef þessi lög sem við bíðum eftir hefðu tekið gildi," segir hann. Erlent launafólk hefur veika stöðu í ókunnu landi, ekki síst vegna málleysisins. Magnús segir að það séu sem betur fer alltaf einhverjir sem gefi sig fram og segi frá. Svo hafi verið í þessu tilviki.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira