Feigðarflan í Grænu húsi 29. nóvember 2005 11:00 Rúnar Helgi Vignisson stofnaði Græna húsið til að búa til nýjan farveg fyrir það sem hann vill skrifa og þýða.
Bókaforlagið Græna húsið heldur sína fyrstu útgáfuhátíð með pomp og prakt á Súfistanum í kvöld og verða þar þrjár fyrstu bækur forlagsins kynntar. "Það hefur verið draumur í nokkurn tíma hjá okkur hjónunum að stofna eigið forlag," segir Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og annar eigandi Græna hússins. Rúnar hefur bæði skrifað og þýtt verk sem hafa komið út hjá Bjarti og JPV. "Það hefur vakið athygli að ég skyldi stofna mitt eigið forlag en ég vildi skapa nýjan farveg fyrir það sem mig langar að skrifa og það sem mig langar að þýða. Ég geri líka ráð fyrir að gefa út bækur eftir aðra." Fyrstu bækur forlagsins eru skáldsagan Feigðarflan eftir Rúnar sjálfan, barnabókin Silfurvængur og Þetta snýst ekki um hjólið, sem fjallar um hjólreiðakappann Neil Armstrong. Feigðarflan er sjötta skáldverk Rúnars og fjallar um uppgjafarskáld sem hefur fengið leið á lífinu og leggur í leit að heppilegum stað til að stytta sér aldur. Úr því verður vegasaga þar sem maðurinn er aldrei sáttur við þá staði sem hann finnur og eftir því sem líður á ferðalagið breytist sýn hans á lífið. "Kannski er það vegna þess að ég er orðinn miðaldra og sýn mín á lífið er að breytast," segir Rúnar um yrkisefnið. "En þetta er fyrst og fremst samræða við tíðarandann þar sem svo mikil áhersla er lögð á fjárhagslega velgengni." Auk bókakynninganna verður boðið upp á tónlistaratriði þar sem Rúnar Þórisson gítarleikari kynnir verk af sinni fyrstu sólóplötu, Ósögð orð og ekkert meir. Rúnar samdi á sínum tíma lagið Mér finnst rigningin góð, en þar kemur fyrir Græna húsið svokallaða á Ísafirði. "Það hús áttu afi minn og amma lengi vel og eftir því er forlagið nefnt," segir Rúnar Helgi. "Auk þess er Rúnar mágur minn svo þetta ber allt að sama brunni."
Menning Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira