Slagur um velferð 27. nóvember 2005 05:00 Helgi Hjövar þingmaður Samfylkingarinnar
Frumvarpi til fjárlaga næsta árs var í fyrradag vísað til þriðju umræðu á Alþingi. Tekjur ríkissjóðs eru áætlaðar meiri en nokkru sinni. Tekjur vegna neyslu verða gríðarlegar og í raun svo miklar að Einari Oddi Kristjánssyni, varaformanni fjárlaganefndar, ofbýður og óskar þess innilega að úr tekjum ríkissjóðs dragi og kaupmáttur rýrni í kjölfar lækkandi gengis. Þanþol atvinnuveganna er búið og við erum allt of dugleg við að hækka kaupið, segir Einar Oddur. Í daglöngum umræðum um fjárlagafrumvarpið síðastliðinn fimmtudag var togast á um útgjöld til velferðarmála. Rétt eins og tekist væri á um framtíð velferðarkerfisins. "Einkenni þessa fjárlagafrumvarps er annars vegar skortur á aðhaldi og hins vegar skattalækkanir til okkar hátekjufólksins í samfélaginu," sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, þegar hann í upphafi atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið gerði grein fyrir afstöðu sinni. "Það er nú svo komið að hæstvirtur forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson hefur á einum áratug ásamt félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum aukið skattbyrði hinna lægst launuðu í landinu um heil mánaðarlaun á ári en létt sköttum af okkur hátekjufólkinu í landinu um heil mánaðarlaun á ári," sagði Helgi enn fremur. Tónninn um vaxandi misskiptingu í þjóðfélaginu er sem stef í málflutningi stjórnarandstöðunnar. Að mæla misskiptingu tekna Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, sagði í umræðum um frumvarpið síðastliðinn fimmtudag að Norðurlöndin kæmu vel út úr öllum lífsgæðakönnunum. Hann minntist á svonefndan GINI-stuðul sem mælir tekjuskiptingu í þjóðfélaginu. Því nær sem hann fer núllinu, því meiri er jöfnuðurinn milli tekjuhópa. Því nær sem stuðulinn nálgast 1,0, því meiri er ójöfnuðurinn. Jón sagði að misskipting eða ójöfnuður hefði aukist gríðarlega síðustu ár. Danmörk væri enn það land innan OECD þar sem jöfnuður væri mestur. Í humátt á eftir kæmu Svíþjóð, Noregur og Finnland en öll eru þessi lönd um eða undir 0,25 á GINI-kvarðanum. "Frá árinu 1995 hefur GINI-stuðulinn fyrir Ísland hækkað úr 0,21 í 0,31. Núverandi ríkisstjórn hefur því tekist á ótrúlega skömmum tíma að stórauka misskiptinguna. Eftir síðustu skattkerfisbreytingu, sem samþykkt var á síðasta þingi, færumst við nú enn hraðar frá Norðurlandaþjóðunum," sagði Jón Bjarnason. "Sú misskipting er farin að ógna þeirri samstöðu og þeim einhug sem lengi hefur einkennt íslenskt samfélag," sagði Helgi Hjörvar við atkvæðagreiðsluna síðastliðinn föstudag.Klisjur og ósannindi@Mynd -FoMed 6,5p CP:Magnús Stefánsson FRAMSÓKNARFLOKKIMagnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar, sagði stöðu ríkissjóðs sterkari en dæmi væru um á síðari tímum. Afgangur á rekstri ríkissjóðs væri áætlaður hartnær tuttugu milljarðar króna og það væri meiri afgangur en flestar Evrópuþjóðir gætu státað af. Einnig hefði náðst ótrúlegur árangur við að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Við þessar aðstæður væri stjórnarandstaðan við sama heygarðshornið og héldi því fram að verið væri að skera niður íslenska velferðarkerfið."Sá málflutningur er holari nú en nokkru sinni og á sér enga stoð í raunveruleikanum. Þvert á móti er enn eitt árið verið að auka framlög til velferðarmála, til félagsmála og menntamála svo dæmi séu tekin. Það er rétt að vara þjóðina við því að taka mark á klisjukenndum og ósönnum málflutningi stjórnarandstöðunnar að þessu leyti, heldur horfa til þess sem gert hefur verið og til þess sem felst í þessu fjárlagafrumvarpi. Allt miðar það að því að bæta hag og lífsgæði þjóðarinnar. Þar erum við í fremstu röð meðal þjóða heimsins og þar ætlum við að vera áfram," sagði Magnús."Það dregur í sundur með þeim sem hærri hafa launin og þeim sem lægri hafa launin," sagði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, við atkvæðagreiðsluna.
Innlent Mest lesið Vaktin: Dómari kveður upp um refsingu Diddy Erlent Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Innlent Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Innlent Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Innlent „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Bein útsending: Siglt áleiðis til Gasa Erlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Erlent Fleiri fréttir Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Tillögurnar í leikskólamálum séu vonbrigði og uppgjöf Jörð skelfur í Krýsuvík og Þjóðaröryggisráð fundaði í morgun Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Snorri etur kappi við Bergþór og Ingibjörgu Hafnaði kæru Sameindar vegna Konukots í Ármúla Ingibjörg tekur slaginn við Bergþór Skjálftahrina við Krýsuvík og Kleifarvatn Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Bergþór vill verða varaformaður Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Rauk upp úr flugvél Jet2 Loka leikskóladeild á Stöðvarfirði vegna manneklu Nýjar tillögur falli á herðar vinnandi foreldra Eðlilegt að Ísland skoði að taka þátt Til umræðu að setja upp lokunarpósta við Fossvogsbrú Ragnhildur tekur við Kveik Blæs á sögusagnir um úthugsaða fléttu og ótti við að enda rúmliggjandi Vilja að fallið verði frá hækkun áfengisskatta „Þetta er auðvitað allt of lítið úrtak til að vera marktækt“ Refsing fyrir að reyna að myrða lækni þyngd Miklar breytingar á gjaldskrá leikskóla borgarinnar Nýr stjóri Icelandair vildi bara Airbus þegar hann stýrði Play Sjá meira