Innlent

Skoða einn af hverjum hundrað gámum

Innflutningshöfnin í Sundahöfn. Tollgæslan getur aðeins rannsakað um eitt prósent þeirra 200 þúsund gáma sem hingað berast á ári hverju.Fréttablaðið/Hari
Innflutningshöfnin í Sundahöfn. Tollgæslan getur aðeins rannsakað um eitt prósent þeirra 200 þúsund gáma sem hingað berast á ári hverju.Fréttablaðið/Hari

"Að mínu viti hefur verið illa að þessum málum staðið hingað til og ég tel orðið nauðsynlegt að kaupa slíkt tæki sem allra fyrst," segir Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður. Hann hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi hvort til standi að kaupa gegnumlýsingartæki fyrir gáma fyrir tollgæsluna í því skyni að hefta innflutning á fíkniefnum. Um er að ræða skanna sem getur tekið heilu gámana í gegn á nokkrum mínútum en einu slíku tæki tollgæslunnar í dag eru svo lítil að þau ráða ekki við að gegnumlýsa eitt vörubretti.

Mikill tími fer í að opna gáma og taka úr þeim vörur sem nauðsynlegt er að handlanga í gegn og segir Guðmundur að aðeins eitt prósent þeirra tvö hundruð þúsund gáma sem hingað koma séu skoðaðir sökum þessa. "Ég hef fyrst og fremst áhyggjur af fíkniefnum í þessu sambandi. Meðan ekki er hægt að leita betur, hraðar og markvissara en gert er í dag erum við að bjóða hættunni heim."

Sigurður Skúli Bergsson, forstöðumaður tollgæslusviðs tollgæslunnar, segir vissulega þörf fyrir slík tæki við helstu gámaflutningahafnir. "Með þeim tækjum sem við höfum getum við aðeins gegnumlýst stöku kassa og vissulega setur það okkur ákveðnar skorður."

Aðspurður um hvort eitthvað af þeim fíkniefnum sem tollgæslan lagði hald á við leit á síðasta ári hafi fundist með hjálp þeirra gegnumlýsingartækja sem þeir hafa yfir á að ráða sagði hann svo ekki vera. "Þetta eru fyrst og fremst hjálpartæki og leiki grunur á einhverju óeðlilegu þá er viðkomandi vöru rennt í gegn."

Guðmundur Hallvarðsson segist vita til þess að verið sé að skoða kaup á slíku tæki hjá fjármálaráðuneytinu en hvert slíkt tæki kostar um 80 milljónir króna.

"Allar nágrannaþjóðir okkar eiga slík tæki enda nauðsynlegt að tollaeftirlit sé virkt og það er að mínu viti ekki hér á landi. Það segir sig sjálft að verðmæti stórra fíkniefnasendinga er það mikið að slíkur búnaður yrði fljótt búinn að borga sig ef slíkt næðist."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×