Ríkið launi nýrnagjöf 1. nóvember 2005 05:00 Runólfur Pálsson. Segir að nýrnaígræðsla sem meðferð við nýrnabilun á lokastigi sé mun ódýrari í tímans rás en skilunarmeðferð, sem er blóðhreinsunarmeðferð sem beita verður sé ekki hægt að græða nýtt nýra í sjúklinginn.
Ríkið á að greiða lifandi nýrnagjöfum full laun meðan þeir eru frá vinnu vegna nýrnabrottnámsins með þeim hætti að greiðslurnar komi úr almannatryggingakerfinu. Þetta segir Runólfur Pálsson, yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Hann segir að skipan þessara mála sé þannig sums staðar erlendis, til dæmis í Danmörku. Runólfur segir vinnuveitendur hafa verið afar hjálplega við að hliðra til fyrir starfsmenn sem vilja gefa nýra. "Við erum að tala um lifandi gjafa, fólk sem er í fullu fjöri og er ekki að fara í aðgerð í eigin þágu heldur annars einstaklings. Það er að gefa gríðarlega stóra og mikla gjöf, sem varla er hægt að hugsa sér stærri. Oft er þetta fólk á besta aldri, fyrirvinna sinnar fjölskyldu og ef til vill þannig statt í sínu lífi að það má illa við launamissi. Eftir aðgerð þar sem nýra er numið brott getur tekið allt frá einum mánuði upp í þrjá fyrir viðkomandi gjafa að ná fullri vinnufærni aftur eftir því hvers eðlis starf hans er." Runólfur segir vinnuveitandanum ekki skylt að greiða viðkomandi full vinnulaun þann tíma sem hann er fjarverandi vegna nýragjafar, þar sem það falli ekki undir veikindarétt samkvæmt skilgreiningu. "Íslendingar eru með eitt hæsta hlutfall sem þekkist af lifandi nýrnagjöfum, samanborið við látna. Meira en sjötíu prósent nýrna sem grædd hafa verið í Íslendinga síðustu ár hafa komið frá lifandi gjöfum. Á þessu ári hafa ellefu af fjórtán ígræddum nýrum komið frá lifandi gjöfum." Runólfur segir að á undanförnum árum hafi margoft verið rætt við yfirvöld heilbrigðis- og tryggingamála um aðkomu almannatryggingakerfisins að nýrnagjöfum. Menn hafi skilning á þessu þó það hafi ekki komið til framkvæmda. "Mitt mat er að miðað við annað sem við gerum í þessu samfélagi hvað snertir heilbrigðisþjónustu og félagslega þjónustu sé full ástæða til þess að launamissir sé greiddur af sjúkratryggingum. Þetta er mikilvægt mál og við munum áfram sækja það fast."
Innlent Mest lesið Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Innlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Erlent Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Innlent Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Innlent Greiðvikni kom í bakið á fjórum Innlent Fleiri fréttir Ein breyting í sveitarstjórn Kaldarananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Aðför sem krefjist þess að talað sé um kvenréttindi frekar en kynjajafnrétti Vel fór á með Hildi og oddvitunum þremur í Hannesarholti Jóhannes Einarsson verkfræðingur látinn Óska eftir vitnum að líkamsárás í Lækjargötu Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Fjölgun hælisleitenda í Reykjanesbæ sé engin Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag Sjá meira
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent