Byggðastofnun hætt að lána 21. nóvember 2005 06:00 Framkvæmdir á Bíldudal. Bygging kalkþörungaverksmiðju komst í uppnám eftir að Landsbankinn vildi ekki lána fé til framkvæmdanna.
Stjórn Byggðastofnunar tók ákvörðun um það í lok október að stöðva allar lánveitingar í bili. Að sögn Aðalsteins Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Byggðastofnunar, var stofnunin komin undir þau mörk sem fjármálaeftirlitið setur varðandi eiginfjárhlutfall fjármálastofnana. "Okkur þótti því skynsamleg afstaða að staldra aðeins við. Hvað þetta ástand varir lengi þori ég ekki að segja til um eins og er, en það er nefnd á vegum iðnaðarráðherra að fara yfir stöðu stofnunarinnar í ljósi þess að rekstrarumhverfið hefur breyst." Aðalsteinn kveðst ekki gera aðrar kröfur til stjórnvalda nema að þau taki afstöðu til hlutverks Byggðastofnunar og með hvaða hætti hún eigi að starfa. Sjálfur telur hann þörf fyrir lánastarfsemi af þessu tagi, því þótt þjónusta banka og fjármálafyrirtækja hafi aukist undanfarin ár og aðgengi að fjármagni aukist, séu enn mörg brýn verkefni sem bankarnir vilja ekki fjármagna. "Ég á bágt með að tjá mig um einstök dæmi, þar sem það hvílir bankaleynd á þessum viðskiptum, en nýlega var sagt frá því í fréttum að Landsbankinn vildi ekki veita lán til byggingar kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal. Ég myndi segja að þetta væri skýrt dæmi um að það er enn þörf fyrir stofnun á borð við Byggðastofnun." Aðalsteinn segist sjá Byggðastofnun áfram sem fjármálastofnun, en nýrri stefnumótun, sem stendur yfir núna, verði að vera lokið fyrir áramót. "Við erum komnir í klemmu hvað varðar lagaskilyrði gagnvart fjármálaeftirlitinu og það eitt og sér veldur því að stofnunin gæti misst starfsleyfið verði ekki brugðist við." Þá bendir hann á að bág fjárhagsstaða Byggðastofnunar hafi blasað við lengi og sú endurskoðun sem á sér stað núna hefði átt að fara fyrr af stað og ganga hraðar fyrir sig. "En það er kominn fullur kraftur í það starf núna og ég á von á að því ljúki fyrir áramót." Ekki náðist í Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra vegna málsins.
Innlent Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Fleiri fréttir Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Sjá meira