Björn Ingi ætlar í fyrsta sæti 20. nóvember 2005 04:00 Björn Ingi Hrafnsson segist vonast eftir drengilegri kosningabaráttu sem auka muni veg Framsóknarflokksins í borginni.
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, hefur lýst yfir framboði sínu til fyrsta sætis í væntanlegu prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna komandi borgarstjórnarkosninga. Alfreð Þorsteinsson, oddviti flokksins í borginni, er að hverfa til annarra starfa. Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi hefur þegar lýst yfir framboð sínu í fyrsta sæti. Björn Ingi segir tvær ástæður helstar fyrir ákvörðun sinni. "Í fyrsta lagi starfa ég í stjórnmálum og hef brennandi áhuga á borgarmálum. Sem varaþingmaður Reykvíkinga hef ég líka getað kynnt mér þau mál sem hæst bera, myndað mér skoðun og komið fram með hugmyndir. Síðan má kannski segja að hin ástæðan sé þessi kaflaskil sem eru núna í pólitíkinni í Reykjavík," segir hann og vísar til þess að Reykjavíkurlistasamstarfið sé að líða undir lok og Framsókn bjóði fram undir eigin merkjum í fyrsta sinn síðan árið 1990, auk þess sem oddviti flokksins í borginni hafi ákveðið að draga sig í hlé. "Við það skapast tækifæri og ég vil eyða um það allri óvissu því mitt nafn hefur mikið verið nefnt og ég fundið fyrir góðum stuðningi sem ég er þakklátur fyrir." Prófkjör Framsóknarflokksins verður haldið 28. janúar næstkomandi. Það mun verða svokallað opið prófkjör þar sem flokksbundnir og þeir sem skrifa undir stuðning við stefnu flokkins, án þess þó að þurfa að ganga í hann, fá að taka þátt. "Ég er hvergi banginn og finn fyrir miklum stuðningi," segir Björn Ingi.
Innlent Stj.mál Mest lesið Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Innlent Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Innlent Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Veður Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Innlent Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Erlent Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Innlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Innlent Fleiri fréttir Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Brottfararstöð fyrir hælisleitendur og fasteignamarkaður í ójafnvægi Óvenjulítill snjór á hálendinu auki rýrnun jökla í sumar Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Bæjarstjóri Ölfus biðlar til ríkisins vegna Garðyrkjuskólans „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Snjólaust á fjöllum og Garðyrkjuskólinn grútnar niður Njósnamálið, hræringar í evrópskum stjórnmálum og fjárhagur borgarinnar Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti Vakinn af „ölvunarsvefni“ inni á baði og brást ókvæða við Býður upp á sögugöngu um svæðið sem hún vill vernda Sex ára framtíðar sauðfjárbóndi á Rangárvöllum Samfylkingin bætir við sig og sauðburður á fullu Sinueldur við Landvegamót Sigldi ölvaður utan í annan bát og endaði í grjótgarði Kvartöld liðin frá jarðskjálftunum 17. júní á Suðurlandi Samfylkingin með 29 prósenta fylgi „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Mörg hundruð óseldar fasteignir og sótt í sund Rykið dustað af sólbekkjunum Nágrannaerjur, grjótkast og „víðáttuölvuðum“ veitt eftirför Nýtt 44 herbergja hjúkrunarheimili byggt í Hveragerði „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Öskrandi reiður í vandræðum með að leigja rafskútu Glussakerfið ónýtt eftir brunann Hefur áhyggjur af arftaka sínum Sjá meira