Skyndibitafæði fyrir sálina 10. nóvember 2005 15:00 Áslaug Snorradóttir ljósmyndari í góðum félagsskap á Hótel Búðum.
Áslaug Snorradóttir ljósmyndari hefur ávallt haft óendanlega gaman af mat og er ævintýramanneskja bæði í ferðalögum og í matargerð. "Ég hef gengið í gegnum ýmiskonar matargerðarsveiflur sem eru oft vegna áhrifa frá þeim löndum sem ég hef nýlega heimsótt. Þannig hef ég gengið í gegnum bylgjur eins og finnsku, marókkósku og úkraínsku bylgjurnar," segir hún og hlær. "En svo getur þetta stýrst af heilsufari og skapi." Undanfarið ár hefur Áslaug farið í nálarstungumeðferðir og í gegnum þær farið að uppgötva austurlensk fræði eins og Ayurveda. Búðin Maður lifandi í Borgartúni er í miklu uppáhaldi þar sem hún sækir bæði heilsumeðferðir og heilnæmt fæði. "Ég er alger skyndibitamanneskja, en það er mjög einfalt að framreiða snögga og bráðholla skyndibitarétti. Til dæmis er ég mjög hrifin af að borða klettasalat með furuhnetum, ólífuolíu og sítrónusafa, og er enga stund að skella því saman. Reyndar myndi ég segja að í augnablikinu hrífist ég mest af sem einfaldastri matargerð. Þetta er matarbylgja sem er að sækja á í Skandinavíu og í Bandaríkjunum, að blanda ekki of miklum bragðtegundum, heldur hafa matinn sem einfaldastan til að hráefnin njóti sín. Ég nota mikið af ferskum kryddjurtum en aldrei salt og krydd lengur. Reyndar sagði einmitt nálarstunguþerapistinn minn að ég mætti helst ekki borða nein krydd nema ferska engiferrót. Ég vil bara svona hrein brögð núna eins til dæmis bara krækling og spagettí, eða bara fisk og grænmeti. Engar flóknar sósur og krydd. Ég gufusýð mikið af grænmeti, sérstaklega brokkólíi og kaupi grænmeti í Yggdrasli og Manni lifandi. Ég spyr Áslaugu hvort hún sé kannski byrjuð að hugleiða líka fyrst hún er dottin í heilsubylgjuna. "Jú, og ég er líka að byrja í jóga," segir hún. "En ég er alls enginn fanatíker á mat. Mér einfaldlega býður bara við djúpsteiktum mat eins og hamborgara og frönskum. En ég er ekkert á móti fitu - þvert á móti nóta ég mikið smjör og rjóma og elska majónes - en það verður þá að vera heimalagað." En hvað með sætuna? Dettur hún ekki í súkkulaðisukk og rjómakökur? " Nei, alls ekki. Ég fæ alla sætuna sem ég þarf úr ávöxtum eins og papaya og mangó sem ég elska, hvort sem það er í forrétt eða eftirrétt. Eru einhverjir uppáhaldsveitingastaðir í bænum, fyrir utan heilsustaðina? "Nýjasta uppgötvunin mín er bröns á Hótel Nordica. Það er alveg dásamlegt að fara með fjölskylduna í bröns á sunnudögum og fá sér eitthvað af því dýrðlega hlaðborði, enda eru þeir með spennandi klassíska brönsrétti eins og egg benedict - á frábæru þunnu brauði, með hráskinku og hollandaise-sósu. Algert lostæti. En svo er Nordica barinn einmitt með alveg frábært skyndibitafæði. Þá er ég að tala um snilldarlegan pinnamat eins og foie gras (gæsalifur) í bitum með örlítilli sultu. Þetta er frábær staður til að fá sér léttan kvöldverð og hvítvínsglas á hvaða degi vikunnar sem er." "Klausturbleikja með avokadó og alfalfa. Þetta er svona dæmi um hollan skyndibitamat sem ég er að uppgötva. Þetta er hráfæði og manni líður ótrúlega vel af svona hádegisverði, fyrir utan það hvað þetta er fallegt á diski. Þetta er svona sashimi- inspirerað hjá mér. Skerðu fallega Klausturbleikju í strimla og settu fyrir miðju á diskinn Öðrum megin setur þú rönd af alfalfaspírum, og hinum megin setur þú þroskað avókadó, skorið langsum. Settu svo súrsað engifer til hliðar ásamt lítilli skál af tamarisósu, sem þú kreistir ögn af lime-safa út í."
Menning Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Fleiri fréttir Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sjá meira